| Sf. Gutt
Danny Wilson var fyrr í vikunni valinn í skoska landsliðið. Þetta er merkilegt val í sögulegu samhengi því leikmaður frá Liverpool hefur ekki verið valinn í skoska landsliðið frá því Steve Nicol var valinn í liðið haustið 1991.
Danny Wilson var valinn í skoska landsliðið fyrir vináttuleik við Færeyjar sem fer fram næsta þriðjudag í Aberdeen. Ekki er hægt að segja annað en Danny, sem hefur aðeins leikið einn leik með Liverpool frá því hann kom frá Glasgow Rangers í sumar, sé í miklum metum í Skotlandi.
Danny hefur leikið fimm leiki með undir 21. árs liði Skota og hann lék báða leikina gegn Íslendingum í umspilinu fyrir úrslitakeppni Evrópukeppni landsliða núna í haust. Hann stóð sig vel í þeim leikjum.
Danny Wilson kom, eins og áður sagði, frá Rangers núna í sumar. Hann varð skoskur meistari og Deildarbikarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð og var kjörinn efnilegasti leikmaður Skotlands.
Vonandi nær Danny Wilson að láta að sér kveða hjá Liverpool. Það er að segja verði hann nógu góður.
Þess má geta að Martin Kelly var valinn í 21. árs lið Englendinga.
TIL BAKA
Danny valinn í skoska landsliðið
Danny Wilson var fyrr í vikunni valinn í skoska landsliðið. Þetta er merkilegt val í sögulegu samhengi því leikmaður frá Liverpool hefur ekki verið valinn í skoska landsliðið frá því Steve Nicol var valinn í liðið haustið 1991. Danny Wilson var valinn í skoska landsliðið fyrir vináttuleik við Færeyjar sem fer fram næsta þriðjudag í Aberdeen. Ekki er hægt að segja annað en Danny, sem hefur aðeins leikið einn leik með Liverpool frá því hann kom frá Glasgow Rangers í sumar, sé í miklum metum í Skotlandi.
Danny hefur leikið fimm leiki með undir 21. árs liði Skota og hann lék báða leikina gegn Íslendingum í umspilinu fyrir úrslitakeppni Evrópukeppni landsliða núna í haust. Hann stóð sig vel í þeim leikjum.

Danny Wilson kom, eins og áður sagði, frá Rangers núna í sumar. Hann varð skoskur meistari og Deildarbikarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð og var kjörinn efnilegasti leikmaður Skotlands.
Vonandi nær Danny Wilson að láta að sér kveða hjá Liverpool. Það er að segja verði hann nógu góður.
Þess má geta að Martin Kelly var valinn í 21. árs lið Englendinga.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

