| Grétar Magnússon

Kyrgiakos ekki með gegn Wigan

Roy Hodgson staðfesti það í dag að Sotirios Kyrgiakos verður ekki með gegn Wigan á morgun, miðvikudag.  Joe Cole er einnig ennþá frá keppni en Glen Johnson og Fabio Aurelio gætu spilað.

,,Soto Kyrgiakos hefur enn ekki jafnað sig af hálsbólgu, Joe Cole er ennþá meiddur aftan í læri," sagði Hodgson á blaðamannafundi fyrir Wigan leikinn.

,,Glen Johnson er mun betri og við sjáum til á morgun hvernig hann bregst við æfingunni.  Daniel Agger verður frá í einhvern tíma vegna meiðsla í kálfa.  Fabio Aurelio er klár í slaginn og Ryan Babel líka, ég er þó ennþá með örlitlar áhyggjur vegna þess hversu rosalega marinn rifbeinin í Babel eru og við munum passa hann eins lengi og við getum."

Hodgson var einnig spurður út í framtíð Pepe Reina, en markvörðurinn á að hafa sagt að hann gæti jafnvel farið frá félaginu næsta sumar verði ekki fjárfest almennilega í nýjum leikmönnum.

Hann svaraði:  ,,Það eru alltaf tvær hliðar á svona málum.  Við erum mjög ánægðir með að hafa Reina hér og ég vona að hann verði mun lengur hjá okkur en til enda tímabilsins.  Ef hann vill ekki spila fyrir Liverpool þegar tímabilinu er lokið verðum við að tækla þá stöðu ef hún kemur upp, en ég skil ekki hvers vegna, sjö eða átta mánuðum fyrir lok tímabilsins hvers vegna ég er endalaust beðinn um að segja mitt álit á þessu."

,,Mín skoðun er sú að hann er frábær markvörður og ég vona að hann verði hjá Liverpool um mörg ókomin ár.  Fyrir mér er Pepe Reina einn besti leikmaðurinn hjá félaginu.  Ég þarf aldrei að efast um vilja hans til að spila og gera sitt allra besta fyrir félagið.  Það er það mikilvægasta í þessu."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan