| Sf. Gutt

Guðlaugur Victor lék í fyrsta sinn

Guðlaugur Victor Pálsson lék sinn fyrsta leik með lánsliði sínu Dagenham & Redbridge í dag. Liðið mætti þá Leyton Orient í 1. umferð F.A. bikarsins. Guðlaugur var í byrjunarliðinu og lék allan leikinn. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli á heimavelli Dagenham og liðin þurfa að leika aftur. Eftir því sem best er vitað þá var þetta fyrsti opinberi leikur Guðlaugs í aðalliði á ferli hans.

Þess má geta að þeir Stephen Darby og Thomas Ince léku með Notts County þegar liðið vann Gateshead 2:0 í F.A. bikarnum. Þeir fóru í lán núna í vikunni eins og Guðlaugur. Tom er þar með búinn að leika undir stjórn pabba síns en Paul Ince er nýráðinn framkvæmdastjóri Notts County.







TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan