| Sf. Gutt

Guðlaugur Victor lánaður

Í dag var tilkynnt að Guðlaugur Victor Pálsson hafi verið lánaður. Hann verður í láni fram yfir áramót hjá Dagenham & Redbridge sem leikur í þriðju og næst neðstu deild ef atvinnumannadeildirnar eru allar taldar. Lánstíminn er til 4. janúar 2011. Dagenham er sem stendur í næst neðsta sæti deildarinnar.

Það hefur legið í loftinu síðustu vikur að Guðlaugur yrði lánaður og nokkur félög í neðri deildinum sýndu áhuga á að fá hann að láni. Til að mynda munaði litlu að Guðlaugur færi yfir Mersey ána til að leika með Tranmere Rovers. Ekkert varð af því en nú er lánssamningur í höfn.

Guðlaugur lék með varaliðinu núna fyrr í vikunni þegar það lagði Sunderland að velli 2:1. Bæði mörkin voru sjálfsmörk en Guðlaugur átti þátt í þeim báðum. Hann var í byrjunarliðinu í þeim leik og var það í fyrsta sinn í nokkurn tíma sem hann hefur verið í því.





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan