| Grétar Magnússon
Joe Cole meiddist í leiknum gegn Bolton um síðustu helgi og verður frá keppni í tvær vikur.
Cole var skoðaður af læknaliði félagsins í gær og ljóst er að meiðslin halda honum frá keppni. Dr. Peter Brukner yfirmaður íþróttavísinda hjá félaginu sagði: ,,Skönnun staðfesti það að Joe Cole hefur skaddað vöðva aftaní læri. Þetta eru ekki alvarleg meiðsli en þýða þó líklega tveggja vikna fjarveru."
Þetta þýðir að Cole missir af leiknum gegn Napoli á fimmtudaginn, hann nær ekki að mæta sínum gömlu félögum í Chelsea á sunnudaginn kemur og auk þess mun hann missa af leikjum gegn Wigan úti 10. nóv, Stoke úti 13. nóv og West Ham heima 20. nóv. Mögulegt er að hann snúi til baka í útileik gegn Tottenham þann 28. nóvember.
Roy Hodgson vonast til þess að Cole snúi til baka eftir meiðslin og fari nú að sýna sitt rétta andlit.
,,Hann hefur sýnt góð tilþrif öðru hverju - sérstaklega þegar hann átti frábæra stoðsendingu á Torres í sigurmarkinu gegn Blackburn," sagði Hodgson.
,,Mér finnst Joe hafa staðið sig vel því hann er virkilega áhugasamur, hann leggur mjög hart að sér og hann vill gera vel hér. Hann er frábær leikmaður en við höfum ekki séð það besta frá honum ennþá. Hann á meira inni og hann veit það sjálfur."
TIL BAKA
Cole frá í tvær vikur
Joe Cole meiddist í leiknum gegn Bolton um síðustu helgi og verður frá keppni í tvær vikur.Cole var skoðaður af læknaliði félagsins í gær og ljóst er að meiðslin halda honum frá keppni. Dr. Peter Brukner yfirmaður íþróttavísinda hjá félaginu sagði: ,,Skönnun staðfesti það að Joe Cole hefur skaddað vöðva aftaní læri. Þetta eru ekki alvarleg meiðsli en þýða þó líklega tveggja vikna fjarveru."
Þetta þýðir að Cole missir af leiknum gegn Napoli á fimmtudaginn, hann nær ekki að mæta sínum gömlu félögum í Chelsea á sunnudaginn kemur og auk þess mun hann missa af leikjum gegn Wigan úti 10. nóv, Stoke úti 13. nóv og West Ham heima 20. nóv. Mögulegt er að hann snúi til baka í útileik gegn Tottenham þann 28. nóvember.
Roy Hodgson vonast til þess að Cole snúi til baka eftir meiðslin og fari nú að sýna sitt rétta andlit.
,,Hann hefur sýnt góð tilþrif öðru hverju - sérstaklega þegar hann átti frábæra stoðsendingu á Torres í sigurmarkinu gegn Blackburn," sagði Hodgson.
,,Mér finnst Joe hafa staðið sig vel því hann er virkilega áhugasamur, hann leggur mjög hart að sér og hann vill gera vel hér. Hann er frábær leikmaður en við höfum ekki séð það besta frá honum ennþá. Hann á meira inni og hann veit það sjálfur."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

