| Ólafur Haukur Tómasson

Tveir leikmenn á lán

Liverpool Football Club greindi frá því núna fyrir skömmu að tveir leikmenn varaliðsins hefðu gengið frá lánssamningum við Notts County sem leikur í þriðju deild af fjórum atvinnumannadeildunum.

Um er að ræða Stephen Darby, sem hefur komið inn á í einum aðalliðsleik á tímabilinu og Tom Ince sem mun nú spila undir stjórn föður síns, Paul Ince, nýráðins stjóra liðsins og fyrrum leikmanns Liverpool.

Samningarnir gilda til 3. janúar næst komandi og eru þeir nú báðir gjaldgengir með liðinu í F. A. bikarnum en liðið mætir Hartlepool í keppninni á morgun.

Stephen Darby, sem var á láni hjá Swindon í smá tíma á síðustu leiktíð, er orðinn 22 ára gamall og á að baki sex leiki með aðalliði Liverpool. Stephen varð, með Swindon, fyrsti leikmaður Liverpool til að leika á nýja Wembley. Hann varð Unglingabikarmeistari með Liverpool 2006 og 2007.

Tom Ince er aðeins átján ára gamall og á einn aðalliðsleik með Liverpool á sinni ferilskrá. Ekki er ólíklegt að fjölskyldubönd hafi ráðið töluverðu um að Tom fór í lán til Notts County! Hann þykir efnilegur útherji.

Nú geta spurningar vaknað varðandi framtíð Darby hjá félaginu en hann er líklega orðinn of gamall fyrir varaliðið og hefur illa tekist að vinna sér inn sæti í aðalliðinu og því gæti þetta hugsanlega verið upphafið á endanum á ferli hans hjá Liverpool.

Við óskum þeim góðs gengis hjá Notts County og vonum að þeir næli sér í dýrmæta reynslu sem mun gera þeim og Liverpool mjög gott.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan