| Sf. Gutt
Ungverski markmaðurinn Peter Gulacsi er nú í láni hjá Tranmere Rovers. Hann var upphaflega lánaður í mánuð en nú hefur dvöl hans verið framlengd til loka nóvember.
Peter var fenginn að láni á svokölluðu neyðarláni og var ástæðan sú að aðalmarkvörður Tranmere meiddist. Sá er frændi okkar frá Færeyjum Gunnar Nielsen sem er reyndar líka lánsmaður en hann er samningsbundinn Manchester City. Ef rétt er munað þá er Gunnar af íslenskum ættum.
Peter kannast vel við sig hjá Tranmere því hann var um tíma lánsmaður þar á síðustu leiktíð. Hann þykir hafa staðið sig mjög vel hinu megin við Mersey og dvölin þar á eftir að koma honum vel.
Peter kom sterklega við sögu í kvöld þegar Tranmere sló Stockport út úr utandeildarbikarkeppninni. Tranmere vann 4:3 í vítaspyrnukeppni og úrslit réðust þegar Peter varði síðasta víti Stockport.
TIL BAKA
Peter í láni
Ungverski markmaðurinn Peter Gulacsi er nú í láni hjá Tranmere Rovers. Hann var upphaflega lánaður í mánuð en nú hefur dvöl hans verið framlengd til loka nóvember. Peter var fenginn að láni á svokölluðu neyðarláni og var ástæðan sú að aðalmarkvörður Tranmere meiddist. Sá er frændi okkar frá Færeyjum Gunnar Nielsen sem er reyndar líka lánsmaður en hann er samningsbundinn Manchester City. Ef rétt er munað þá er Gunnar af íslenskum ættum.
Peter kannast vel við sig hjá Tranmere því hann var um tíma lánsmaður þar á síðustu leiktíð. Hann þykir hafa staðið sig mjög vel hinu megin við Mersey og dvölin þar á eftir að koma honum vel.
Peter kom sterklega við sögu í kvöld þegar Tranmere sló Stockport út úr utandeildarbikarkeppninni. Tranmere vann 4:3 í vítaspyrnukeppni og úrslit réðust þegar Peter varði síðasta víti Stockport.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

