| Sf. Gutt
Christian Purslow, sem hefur verið forstjóri Liverpool, hefur látið af því starfi. Hann mun starfa áfram, hjá Liverpool F.C., sem ráðgjafi nýju eigendanna. Tom Werner, stjórnarformaður NESV, sagðist ánægður með að Christian hafi tekið að sér að vera ráðgjafi hjá þeim.
Christian hafði sjálfur þetta að segja. ,,Ég kom til LFC til að leiða félagið í gegnum söluferli sem átti að finna þann besta mögulega kaupanda. Eins var stefnt á að gera félagið skuldlaust sem var mjög mikilvægt. Ég er gríðarlega stoltur með það sem okkur öllum tókst að ná fram. Ég hlakka til að hjálpa eigendunum á hvern þann hátt sem ég get á þessum spennandi tímum þegar þeir munu drífa félagið til bjartrar framtíðar."
Christian hefur verið nokkuð umdeildur þótt ekki verði umdeilt að hann átti stóran þátt í mörgu góðu svo sem sölu félagsins og því að ná stórum styrktarsamningi við Standard Chartered.
Á hinn bóginn þótti hann vera full ráðríkur í því ferli sem endaði með því að Rafael Benítez hætti og Roy Hodgson var ráðinn. Sem dæmi má nefna að hann tók ekki í mál að Kenny Dalglish yrði næsti framkvæmdastjóri en kannski vildi hann Kenny vel með því. Rafael Benítez ber honum ekki vel söguna eins og kom fram í frétt, hér á Liverpool.is, fyrr í vikunni.
Í öllu þessu ber að hafa í huga að Christian Purslow er mikill stuðningsmaður Liverpool og því er ekki hægt að ætla honum annað en að hann hafi alltaf haft hagsmuni félagins í fyrirrúmi þegar hann tók mikilvægar ákvarðanir á erfiðum tímum.
TIL BAKA
Christian Purslow hættir sem forstjóri
Christian Purslow, sem hefur verið forstjóri Liverpool, hefur látið af því starfi. Hann mun starfa áfram, hjá Liverpool F.C., sem ráðgjafi nýju eigendanna. Tom Werner, stjórnarformaður NESV, sagðist ánægður með að Christian hafi tekið að sér að vera ráðgjafi hjá þeim. Christian hafði sjálfur þetta að segja. ,,Ég kom til LFC til að leiða félagið í gegnum söluferli sem átti að finna þann besta mögulega kaupanda. Eins var stefnt á að gera félagið skuldlaust sem var mjög mikilvægt. Ég er gríðarlega stoltur með það sem okkur öllum tókst að ná fram. Ég hlakka til að hjálpa eigendunum á hvern þann hátt sem ég get á þessum spennandi tímum þegar þeir munu drífa félagið til bjartrar framtíðar."
Christian hefur verið nokkuð umdeildur þótt ekki verði umdeilt að hann átti stóran þátt í mörgu góðu svo sem sölu félagsins og því að ná stórum styrktarsamningi við Standard Chartered.
Á hinn bóginn þótti hann vera full ráðríkur í því ferli sem endaði með því að Rafael Benítez hætti og Roy Hodgson var ráðinn. Sem dæmi má nefna að hann tók ekki í mál að Kenny Dalglish yrði næsti framkvæmdastjóri en kannski vildi hann Kenny vel með því. Rafael Benítez ber honum ekki vel söguna eins og kom fram í frétt, hér á Liverpool.is, fyrr í vikunni.
Í öllu þessu ber að hafa í huga að Christian Purslow er mikill stuðningsmaður Liverpool og því er ekki hægt að ætla honum annað en að hann hafi alltaf haft hagsmuni félagins í fyrirrúmi þegar hann tók mikilvægar ákvarðanir á erfiðum tímum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

