| Grétar Magnússon
Steven Gerrard telur að framtíð Jonjo Shelvey á Anfield sé björt. Shelvey var keyptur frá Charlton Athletic í sumar á 1.7 milljón punda.
Hann spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu í leiknum alræmda gegn Northampton í deildarbikarnum og segir Gerrard að hann hafi alla burði til að verða góður knattspyrnumaður.
,,Þegar Jonjo kom inná gegn Northampton fannst mér hann standa sig mjög vel," sagði Gerrard. ,,Hann sendi nokkrar hættulegar sendingar inní vítateiginn þeirra og þessi stutti tími sem hann spilaði ætti að hafa gert honum mjög gott nú þegar hann er að reyna að bæta sig."
,,Þetta gefur honum sjálfstraust til að reyna að komast í byrjunarliðið. Hann er hæfileikaríkur leikmaður. Hann er ennþá ungur kannski telst hann vera ungabarn fótboltalega séð en ef hann heldur áfram að læra - ekki bara af mér heldur öllum leikmannahópnum, af mönnum sem eru eldri og reyndari en hann - þá mun leikur hans bara verða betri og betri."
Þess má geta að Jonjo Shelvey skoraði fyrir undir 19 ára lið Englands á sunnudaginn þegar það vann Kýpur 4:0. Benik Afobe, sem leikur með Arsenal, skoraði hin þrjú mörkin. Michael Ngoo, félagi Jonjo hjá Liverpool, spilaði leikinn og lék vel.
TIL BAKA
Gerrard hrósar Shelvey
Steven Gerrard telur að framtíð Jonjo Shelvey á Anfield sé björt. Shelvey var keyptur frá Charlton Athletic í sumar á 1.7 milljón punda.Hann spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu í leiknum alræmda gegn Northampton í deildarbikarnum og segir Gerrard að hann hafi alla burði til að verða góður knattspyrnumaður.
,,Þegar Jonjo kom inná gegn Northampton fannst mér hann standa sig mjög vel," sagði Gerrard. ,,Hann sendi nokkrar hættulegar sendingar inní vítateiginn þeirra og þessi stutti tími sem hann spilaði ætti að hafa gert honum mjög gott nú þegar hann er að reyna að bæta sig."
,,Þetta gefur honum sjálfstraust til að reyna að komast í byrjunarliðið. Hann er hæfileikaríkur leikmaður. Hann er ennþá ungur kannski telst hann vera ungabarn fótboltalega séð en ef hann heldur áfram að læra - ekki bara af mér heldur öllum leikmannahópnum, af mönnum sem eru eldri og reyndari en hann - þá mun leikur hans bara verða betri og betri."
Þess má geta að Jonjo Shelvey skoraði fyrir undir 19 ára lið Englands á sunnudaginn þegar það vann Kýpur 4:0. Benik Afobe, sem leikur með Arsenal, skoraði hin þrjú mörkin. Michael Ngoo, félagi Jonjo hjá Liverpool, spilaði leikinn og lék vel.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

