| Sf. Gutt

Michael Owen snýr heim til Liverpool

Michael Owen er á heimleið og mun leika með Liverpool á nýjan leik. Hverjum hefði dottið það í hug? Tilefnið er reyndar ágóðaleikur Jamie Carragher á morgun. Í liði Liverpool verður að finna marga fyrrum leikmenn liðsins sem hafa leikið með Jamie frá því hann lék sinn fyrsta leik árið 1997.

Michael Own mun leiða sóknina gegn Everton með Emile Heskey. Jerzy Dudek tekur stöðu sína í markinu og á miðjunni má reikna með mönnum á borð við Jamie Redknapp, David Thompson, Steve McManaman og Danny Murphy. Það er líka von á Luis Garcia í heimsókn. Jamie sjálfur verður í vörninni með mönnum á borð við Steve Finnan og Steven Warnock. Eins mun nýi maðurinn Paul Konchesky spila með.

Það má sjá af þessari upptalningu að þó nokkrir af Evrópumeisturunum frá 2005 verða á svæðinu. Svo verða einhverjir núverandi leikmenn Liverpool með sem ekki eru núna hjá landsliðum sínum. Því miður kemst Steven Gerrard ekki til leiksins þar sem hann verður upptekinn með enska landsliðinu. Ekki eru hér allir taldir því enn er ekki alveg ljóst hvaða leikmenn verða til taks.

Fyrrum þjálfarar Jamie Carragher munu líka heiðra hann við þetta tækifæri og má nefna þá Roy Evans og Gerard Houllier. Hann kemur frá Frakklandi í tilefni af hátíðahöldunum.


Nokkuð hefur verið rætt um hvers konar móttökur Michael Owen muni fá á morgun því margir stuðningsmenn Liverpool hafa ekki fyrirgefið honum þá miklu synd að hafa farið til Manchester United. Jamie hefur beðið stuðningsmenn Liverpool að taka Michael vel. Hann segist alls ekki hafa verið ánægður með að Michael skyldi hafa farið til Manchester United en áréttaði að þeir væru samt vinir og ekkert myndi breyta því. Jamie sagði það ekki hafa verið neina spurningu að bjóða Michael Owen að koma aftur heim á Anfield!



 

  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan