L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
28.08.2010 19:08
|
Sf. Gutt
Þægilegur dráttur í Deildarbikarnum
Dregið hefur verið til 3. umferðar Deildarbikarsins. Segja má að Liverpool hafi fengið þægilegan drátt því mótherjinn reyndist vera Northampton Town og mætast liðin á Anfield Road. Leikurinn fer fram undir lok september en ekki er búið að dagsetja hann.
Northampton leikur í fjórðu deild ef atvinnumannadeildirnar fjórar eru taldar. Drátturinn er því hagstæður fyrir Liverpool ef mið er tekið af því í hvað deild Northampton er.
Liverpool hefur á hinn bóginn alltof oft lent í því á seinni árum að falla úr leik, í ensku bikarkeppnunum, fyrir liðum úr neðri deildum. Er skemmst að minnast skammarlegs brottfalls úr F.A. bikarnum gegn Reading á síðustu leiktíð. Nú væri gaman, til tilbreytingar, að gera ekki svoleiðis skyssu.
Í þessari keppni er líka leið á Wembley og sannarlega tími til kominn fyrir Liverpool að komast á þann ágæta leikvang á nýjan leik. Rauði herinn hefur aldri komist á nýja Wembely og það er ekki boðlegt til lengri tíma litið!
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir