L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
27.08.2010 23:08
|
Sf. Gutt
Paul Konchesky á leið til Liverpool?
Nokkrir fjölmiðlar fullyrða í kvöld að Liverpool muni kaupa Paul Konchesky hvern næsta dag. Sky Sport segir hann muni fara í læknisskoðun um helgina. Í sumum fjölmiðlum er því haldið fram að Fulham fái ungliðana Lauri Dalla Valle og Alex Kacaniklic með eða að minnsta kosti að láni.
Fjölmiðlum virðist bera saman um að samningar séu á lokastigi og Paul gangi til liðs við Liverpool þegar allt verður frágengið. Paul var einn lykilmanna Fulham þegar Roy Hodgson stýrði liðinu. Hann hefur leikið tvo landsleiki með enska landsliðinu.
Á meðfylgjandi mynd sést þegar Paul Konchesky skoraði frægasta mark á ferli sínum en það var í úrslitaleik F.A. bikarsins árið 2006. Hann kom þá West Ham United í 3:2 en Steven Gerrard jafnaði 3:3 eins og allir muna. Liverpool vann svo í vítaspyrnukeppni.
Frá því Roy Hodgson tók við Liverpool hefur Paul, sem leikur jafnan stöðu vinstri bakvarðar, oft verið orðaður við Liverpool.
Portúgalinn Raul Meireles, sem spilar með Porto, er líka mjög orðaður við Liverpool. Fjölmiðlar telja samningaviðræður vera í gangi milli félaganna. Raul þykir sterkur miðjumaður.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir