| Ólafur Haukur Tómasson
Síðan að Rafael Benítez hætti störfum sínum hjá Liverpool og tók við hjá Inter Milan þá hafa verið miklir orðrómar um að Benítez vilji fá nokkra af gömlu lærisveinum sínum til Inter, þá einna helst þá Javier Mascherano og Dirk Kuyt.
Flestir hafa líklega orðið varir við Mascherano og hans ástand en það sem er nýrra er að hollenskir og ítalskir fjölmiðlar vildu meina að Kuyt væri á leið til Ítalíu.
Roy Hodgson sem var áður í sömu sporum og Rafael Benítez, við stjórnvöldin hjá Inter Milan, á í góðu sambandi við Massimo Moratti stjórnarformann þeirra ítölsku og greindi frá því að hann hafi samtal við Moratti þar sem leikmenn Liverpool báru á góma.
"Ég talaði við Massimo Moratti á miðvikudaginn um það að þeir eru ekki að fara að kaupa neinn leikmann frá Liverpool, og Kuyt er í þeim flokki. Ég held að Inter hafi bara haft áhuga á tveimur af leikmönnum okkar og þeir munu ekki kaupa þá. Moratti sagði að þeir ætli sér ekki að gera það. Kuyt er ekki til sölu." sagði Hodgson.
Þessi orð gætu því gefið það í skyn að Javier Mascherano verði áfram í herbúðum Liverpool í vetur, nema þá að hann færi til Barcelona sem að er líka sagt hafa áhuga á Argentínumanninum. Annars yrði það líklega hið besta mál fyrir Liverpool að halda tveimur af mikilvægustu mönnum sínum enn hjá félaginu, og einnig myndi ekki fækka mönnum á miðjunni en eins og einhverjir hafa líklega orðið varir við þá hefur Liverpool lánað Alberto Aquilani til Juventus.
TIL BAKA
Leikmenn Liverpool fara ekki til Inter!
Síðan að Rafael Benítez hætti störfum sínum hjá Liverpool og tók við hjá Inter Milan þá hafa verið miklir orðrómar um að Benítez vilji fá nokkra af gömlu lærisveinum sínum til Inter, þá einna helst þá Javier Mascherano og Dirk Kuyt. Flestir hafa líklega orðið varir við Mascherano og hans ástand en það sem er nýrra er að hollenskir og ítalskir fjölmiðlar vildu meina að Kuyt væri á leið til Ítalíu.
Roy Hodgson sem var áður í sömu sporum og Rafael Benítez, við stjórnvöldin hjá Inter Milan, á í góðu sambandi við Massimo Moratti stjórnarformann þeirra ítölsku og greindi frá því að hann hafi samtal við Moratti þar sem leikmenn Liverpool báru á góma.
"Ég talaði við Massimo Moratti á miðvikudaginn um það að þeir eru ekki að fara að kaupa neinn leikmann frá Liverpool, og Kuyt er í þeim flokki. Ég held að Inter hafi bara haft áhuga á tveimur af leikmönnum okkar og þeir munu ekki kaupa þá. Moratti sagði að þeir ætli sér ekki að gera það. Kuyt er ekki til sölu." sagði Hodgson.
Þessi orð gætu því gefið það í skyn að Javier Mascherano verði áfram í herbúðum Liverpool í vetur, nema þá að hann færi til Barcelona sem að er líka sagt hafa áhuga á Argentínumanninum. Annars yrði það líklega hið besta mál fyrir Liverpool að halda tveimur af mikilvægustu mönnum sínum enn hjá félaginu, og einnig myndi ekki fækka mönnum á miðjunni en eins og einhverjir hafa líklega orðið varir við þá hefur Liverpool lánað Alberto Aquilani til Juventus.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

