| Grétar Magnússon
Slóvakinn Martin Skrtel hefur framlengt samningi sínum við félagið um tvö ár og rennur núverandi samningur þá út árið 2014.
Skrtel átti tvö ár eftir af samningnum og því var kominn tími til að framlengja. Hann sagði af þessu tilefni: ,,Ég er mjög ánægður. Ég hef verið hjá Liverpool í næstum þrjú ár og mér líkar mjög vel hér. Mér líkar vel við borgina, við félagið og stuðningsmennina svo ég er mjög ánægður með að hafa getað framlengt samningnum."
,,Liverpool er eitt stærsta félagslið í heiminum og ég er mjög stoltur yfir því að spila hér í fjögur ár í viðbót."
Skrtel var keyptur fyrir aðeins 6 milljónir punda í janúar 2008 og hefur hann náð að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður enda hentar beinskeittur varnarleikur hans enska boltanum vel.
,,Áður en ég kom hingað héldu margir að ég væri ekki nógu góður til að spila fyrir Liverpool en ég held að ég hafi sýnt framá það."
,,Mér líst vel á að halda áfram að reyna að standa mig eins vel og ég get fyrir félagið. Að hafa skrifað undir nýjan samning veitir mér aukið sjálfstraust og ég mun leggja hart að mér á æfingum á hverjum degi til að spila eins marga leiki og hægt er. Maður er alltaf að bæta sig. Ég þekki mína styrkleika og veikleika og ég held áfram að vinna í þeim."
,,Margt hefur breyst eftir að ég kom til félagsins, nýir leikmenn og nýr stjóri og nýtt læknalið. Andinn er mjög góður og við sýndum það gegn Arsenal með góðri frammistöðu. Við getum byggt á henni og haldið áfram. Við höfum gæðin til staðar og við vitum að við gerum betur í ár. Félag eins og Liverpool á skilið að vinna bikara og ég mun aðstoða við það, vonandi á þessu tímabili."
,,Allir spila knattspyrnu til að vinna bikara. Að spila fyrir Liverpool er mikil hvatning fyrir alla og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að vinna Úrvalsdeildina. Við setjum okkur háleit markmið - að vinna allar keppnir sem við tökum þátt í."
TIL BAKA
Martin Skrtel framlengir
Slóvakinn Martin Skrtel hefur framlengt samningi sínum við félagið um tvö ár og rennur núverandi samningur þá út árið 2014.Skrtel átti tvö ár eftir af samningnum og því var kominn tími til að framlengja. Hann sagði af þessu tilefni: ,,Ég er mjög ánægður. Ég hef verið hjá Liverpool í næstum þrjú ár og mér líkar mjög vel hér. Mér líkar vel við borgina, við félagið og stuðningsmennina svo ég er mjög ánægður með að hafa getað framlengt samningnum."
,,Liverpool er eitt stærsta félagslið í heiminum og ég er mjög stoltur yfir því að spila hér í fjögur ár í viðbót."
Skrtel var keyptur fyrir aðeins 6 milljónir punda í janúar 2008 og hefur hann náð að festa sig í sessi sem byrjunarliðsmaður enda hentar beinskeittur varnarleikur hans enska boltanum vel.
,,Áður en ég kom hingað héldu margir að ég væri ekki nógu góður til að spila fyrir Liverpool en ég held að ég hafi sýnt framá það."
,,Mér líst vel á að halda áfram að reyna að standa mig eins vel og ég get fyrir félagið. Að hafa skrifað undir nýjan samning veitir mér aukið sjálfstraust og ég mun leggja hart að mér á æfingum á hverjum degi til að spila eins marga leiki og hægt er. Maður er alltaf að bæta sig. Ég þekki mína styrkleika og veikleika og ég held áfram að vinna í þeim."
,,Margt hefur breyst eftir að ég kom til félagsins, nýir leikmenn og nýr stjóri og nýtt læknalið. Andinn er mjög góður og við sýndum það gegn Arsenal með góðri frammistöðu. Við getum byggt á henni og haldið áfram. Við höfum gæðin til staðar og við vitum að við gerum betur í ár. Félag eins og Liverpool á skilið að vinna bikara og ég mun aðstoða við það, vonandi á þessu tímabili."
,,Allir spila knattspyrnu til að vinna bikara. Að spila fyrir Liverpool er mikil hvatning fyrir alla og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að vinna Úrvalsdeildina. Við setjum okkur háleit markmið - að vinna allar keppnir sem við tökum þátt í."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

