Forsíða

Frétt

16.08.2010 21:08 | Ólafur Haukur Tómasson

Brad Jones gengur í raðir Liverpool

Ástralski markvörðurinn Brad Jones er að ganga í raðir Liverpool en hann gekkst undir læknisskoðun á Melwood fyrr í dag eftir að Middlesbrough og Liverpool komust loksins að samkomulagi um kaupverðið á honum, það er 2.3 milljónir punda. Jones mun svo skrifa undir þriggja ára samning á morgun.

Jones var varamaður fyrir Mark Schwarzer, þegar hann var á mála hjá Middlesbrough í nokkur ár en var svo aðalmarkvörður Middlesbrough á síðustu leiktíð. Hann á að baki tvo leiki með ástralska landsliðinu og var valinn í Heimsmeistaramótshóp Ástrala en vegna veikinda sonar síns sagði hann sig úr hópnum.

Hann telst vera heimalningur eftir að hafa verið á mála hjá Middlesbrough á unglingsárum sínum en það er talin vera ein helsta ástæðan fyrir þessum kaupum. Að sama skapi setur þetta framtíð varamarkvarðarins Diego Cavalieri í óvissu en mögulega gæti hann verið á förum frá félaginu eftir þetta.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin