| Grétar Magnússon

Rauða spjaldinu ekki áfrýjað

Í dag var tekin sú ákvörðun forráðamanna félagsins að áfrýja ekki rauða spjaldinu sem Joe Cole fékk gegn Arsenal á sunnudag.  Cole mun því taka út þriggja leikja bann.

Strax eftir leikinn sagði Roy Hodgson að hann hefði hug á því að skoða atviki betur og jafnvel áfrýja rauða spjaldinu.  Nú hefur semsagt verið tekin ákvörðun um að áfrýja ekki spjaldinu og mun því Cole fara beint í þriggja leikja bann.

Þetta þýðir að hann missir af leikjum í deildinni gegn Manchester City úti, West Bromwich Albion heima og Birmingham úti.  Næsti deildarleikur sem hann mun spila í er því leikur gegn Manchester United á Old Trafford.  Það má því með sanni segja að fyrstu tveir deildarleikir Joe Cole með Liverpool séu engir smáleikir !

Cole mun eftir sem áður geta spilað með liðinu í Evrópukeppninni og líklega verður hann í byrjunarliðinu á fimmtudaginn þegar tyrkneska liðið Trabzonspor mætir í heimsókn.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan