| Grétar Magnússon
Svissneski varnarmaðurinn Philipp Degen hefur skrifað undir árs lánssamning við þýska Úrvalsdeildarliðið VfB Stuttgart. Degen kom frítt til félagsins árið 2008.
Það var nánast vitað mál að Degen myndi fara frá félaginu í sumar, hvort sem það yrði sala eða lánssamningur. Hann hefur verið mikið meiddur síðan hann kom og þau tækifæri sem hann hefur fengið hefur hann ekki nýtt. Hann hefur t.d. aðeins komið við sögu í 13 leikjum hjá félaginu.
Degen hafði þetta að segja um málið: ,,Ég hlakka til nýrrar áskorunnar og að spila fyrir frábæra stuðningsmenn Stuttgart."
,,Ég vil nýta tækifærið til hins ýtrasta. Það er frábært að vinna aftur fyrir Christian Gross. Ég átti mjög góðan tíma hjá honum þegar við vorum hjá Basel."
Stjóri Stuttgart, Christian Gross, sagði þetta: ,,Ég þekki Philipp mjög vel og met hann mikils sem leikmann og sem persónu. Hann er mjög góður íþróttamaður og snöggur leikmaður sem vill oft sækja fram. Hann vill nýta tækifærið sitt hjá Stuttgart vel."
TIL BAKA
Degen til Stuttgart
Svissneski varnarmaðurinn Philipp Degen hefur skrifað undir árs lánssamning við þýska Úrvalsdeildarliðið VfB Stuttgart. Degen kom frítt til félagsins árið 2008.Það var nánast vitað mál að Degen myndi fara frá félaginu í sumar, hvort sem það yrði sala eða lánssamningur. Hann hefur verið mikið meiddur síðan hann kom og þau tækifæri sem hann hefur fengið hefur hann ekki nýtt. Hann hefur t.d. aðeins komið við sögu í 13 leikjum hjá félaginu.
Degen hafði þetta að segja um málið: ,,Ég hlakka til nýrrar áskorunnar og að spila fyrir frábæra stuðningsmenn Stuttgart."
,,Ég vil nýta tækifærið til hins ýtrasta. Það er frábært að vinna aftur fyrir Christian Gross. Ég átti mjög góðan tíma hjá honum þegar við vorum hjá Basel."
Stjóri Stuttgart, Christian Gross, sagði þetta: ,,Ég þekki Philipp mjög vel og met hann mikils sem leikmann og sem persónu. Hann er mjög góður íþróttamaður og snöggur leikmaður sem vill oft sækja fram. Hann vill nýta tækifærið sitt hjá Stuttgart vel."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

