| SSteinn

Liverpool Open 2010

Liverpool Open 2010 fer fram á laugardaginn nk. 7. ágúst.  Fullt er orðið í mótið fyrir nokkru síðan, eða rúmlega 100 manns, en byrjað er að taka við nöfnum á biðlista.  Eins og gengur og gerist með biðlista, þá er engu hægt að lofa um að menn komist inn í mótið af listanum.  Það stefnir því í glæsilegasta Liverpool Open mót frá upphafi og það á hinum frábæra Urriðavelli.

Við viljum minna menn á að mæta tímanlega, eða klukkan 12:00, en ræst verður út af öllum teigum á slaginu klukkan 13:00 og það getur tekið tíma að koma öllum hollum á sína teiga.  Verði menn ekki mættir tímanlega, þá geta þeir átt á hættu að sæti þeirra verði úthlutað öðrum sem mættir verða á svæðið.

Mjög mikilvægt er að menn mæti merktir Liverpool á einhvern hátt, helst í áberandi treyjum.

Glæsileg verðlaun verða fyrir 3 efstu sætin, einnig verða flottar teiggjafir og nándarverðlaun á öllum par 3 brautum.

Þeir sem vilja komast á biðlistann geta sent e-mail á [email protected]
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan