| Ólafur Haukur Tómasson

Roy staðfestir áhuga á Poulsen

Þar sem að framtíð Javier Mascherano virðist ekki fylgja framtíðaráformum Liverpool þá er Roy Hodgson og aðstoðarmenn hans á fullu við að reyna að finna eftirmann Mascherano hjá Liverpool. Áður var sagt frá því að Liverpool hefði áhuga á danska miðjumanninum Christian Poulsen, leikmanni Juventus, en hann var lærisveinn Hodgson í Kaupmannahöfn á sínum tíma.

Hodgson hefur nú staðfest orðróminn og segir að Liverpool hafi áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir. Fjölmiðlar í Englandi og á Ítalíu vilja meina að félögin hafi náð samkomulagi um kaupverð á leikmanninum en Hodgson gefur ekkert í skyn að slíkt samkomulag sé í höfn heldur er áhuginn frá Liverpool til staðar.

"Ef við getum keypt hann frá Juventus á verði sem ég tel sanngjarnt þá verður hann mjög góður leikmaður til að fá í liðið okkar. Christian er leikmaður sem ég þekki vel til, leikmaður sem ég hjálpaði til við að hefja fyrir mörgum árum og hef fylgst náið með honum síðan." sagði Hodgson.

Poulsen er talinn vera metinn á sex milljónir punda en hann hefur ekki náð að finna sinn besta leik hjá Juventus en hefur náð góðum árangri með Sevilla, FC Kaupmannahöfn og Schalke. Líklega mun það koma í ljós á næstu dögum hvort hann verði orðinn leikmaður Liverpool fyrir næstu leiktíð.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan