| Sf. Gutt

Emiliano fer ekki til Fiorentina

Emiliano Insua mun ekki spila með Fiorentina á næsta keppnistímabili. Talsmaður ítalska félagsins staðfesti þetta í fjölmiðlum í gær. Í máli hans kom fram að Liverpool og Fiorentina hefðu verið búin að komast að samkomulagi um kaup og sölu á leikmanninum.

Samkomulag náðist á hinn bóginn ekki við Emiliano sjálfan um launamál hans. Nokkuð undarlegt verður að teljast að Emiliano skyldi ekki gefa eftir kaupkröfur sínar hafi hann haft einhvern hug á að spila með ítalska liðinu. Þetta er því allt nokkuð dularfullt mál.  

Emiliano Insua er því ennþá leikmaður Liverpool og hann kom óvænt inn í lið Liverpool um helgina. Ekki er gott að segja hvort hann verður það lengi því hann var jú til sölu í síðasta mánuði. En hann verður að minnsta kosti tiltækur í lið Liverpool í nánustu framtíð.
 
Salan fyrirhugaða á Emiliano var nokkuð umdeild meðal stuðningsmanna Liverpool. Sumir töldu ekki rétt að selja Argentínumanninn og nú geta þeir sem vildu ekki selja hann tekið gleði sína.    
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan