| Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool sýnir miðjumönnum áhuga

Liverpool Echo greindi frá því á síðu sinni, og þykja fréttaritarar síðunnar frekar traustir, að Liverpool sé farið að skoða eftirmenn Javier Mascherano sem gæti komið til með að yfirgefa félagið í sumar eftir að hafa greint Roy Hodgson frá því að hann vilji fara.

Samkvæmt þeim eru tveir leikmenn komnir ofarlega á óskalistann, þeir eru Christian Poulsen leikmaður Juventus og Steven Defour leikmaður Standard Liege.

Defour sem er aðeins 22 ára gamall er belgískur landsliðsmaður með 24 landsleiki á bakinu en ásamt því hefur hann verið í nokkurn tíma fyrirliði liðs síns Standard Liege og lék hann þar í nokkurn tíma með Milan Jovanovic, sem gekk til liðs við Liverpool fyrr í sumar. Hann er sagður vilja flytja sig um set og hafa heimildir frá Belgíu staðfest að hann er falur fyrir allt að tólf milljónir evra.

Liverpool senti mann til að fylgjast með Defour spila í opnunarleik Standard Liege í belgísku deildinni í síðustu viku og er Hodgson að skoða möguleikann á að fá þennan kraftmikla miðjumann til Liverpool. Hins vegar er mikill áhugi á leikmanninum en Sir Alex Ferguson er einnig talinn vera mikill aðdáandi leikmannsins og vilji gjarnan fá hann til Manchester United.

Hodgson hefur þó fleiri menn í sigtinu og einn þeirra er danski landsliðsmaðurinn Christian Poulsen sem er á mála hjá ítalska liðinu Juventus.

Poulsen, sem er þrítugur, hefur spilað með Schalke, Sevilla og Juventus ásamt því að spila undir stjórn Roy Hodgson hjá Kobenhavn. Hann er talinn vera falur fyrir fimm til sex milljónir evra og var hann ekki valinn í Evrópuleik Juventus um daginn en það þykir gefa vísbendingu um að hann sé á förum því ef hann hefði spilað leikinn þá væri hann ólöglegur fyrir Liverpool í keppninni.

Stjórnarformaður Juventus hefur greint frá áhuga Liverpool á leikmanninum en segir þó að ástæðan fyrir því að hann lék ekki í Evrópuleiknum sé af tæknilegum ástæðum. Nú er því einnig haldið fram í dönskum fjölmiðlum að Liverpool og Juventus hafi samið um kaupverð á Dananum en ekkert hefur þó fengið staðfest í þeim málum, enn sem komið er.

Það er svo stór spurning hvor leikmaðurinn gæti hentað Liverpool betur þar sem að leikstílar þeirra eru gjörólíkir. Defour þykir góður leikstjórnandi og líður betur á vallarhelmingi andstæðinganna en Poulsen er grjótharður varnartengiliður. Það verður því afar fróðlegt að sjá hvorn leikmanninn Roy Hodgson gæti talið henta liði sínu betur ef hann ákveður að annar hvor þeirra verði fyrir valinu.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan