| Sf. Gutt
Guðlaugur Victor Pálsson fékk tækifæri til að spreyta sig í tveimur leikjum með aðalliði Liverpool fyrr í sumar. Þrátt fyrir að um æfingaleiki hafi verið að ræða þá var þetta mikilvægt skref fyrir landa okkar. Hann var á dögunum í viðtali við LFCTV, sjónvarpsstöð Liverpool, og hafði þá þetta að segja um eitt og annað á æfingatímabilinu.
Æfingar... Æfingarnar hafa verið töluvert erfiðar. Þær miða að því að við séum í góðri æfingu þegar keppnistímabilið hefst. En þetta hefur líka verið mjög gaman og þjálfararnir hafa verið alveg frábærir.
Tækifæri fyrir ungliða... Já, þetta hefur verið mjög gott fyrir mig, Tom og Jack hafa notið góðs af og þetta er tækifæri fyrir okkur alla, Ayala og alla hina. Ég vona að við eigum eftir að sýna honum að eitthvað sé í okkur spunnið.
Samskipti við Roy... Hann hefur mikið rætt við hópinn sem heild en ég vona að hann eigi eftir að ræða við mig einslega um hvað sé í vændum eftir þessa ferð.
Fyrsti leikur... Það var frábært. Ég var bara að vona að ég fengi að spila eitthvað og það var mjög ánægjulegt að fá tækifæri. Mér var alveg sama hvort það hefðu verið þrjár mínútur eða 45.
Draumur um atvinnumennsku... Það hefur verið draumur minn frá því ég var strákur. Ég á ennþá eitthvað í að ná markmiðum mínum og ég á eftir að sanna mig en ég vona að ég eigi eftir að ná því sem ég stefni að.
Tom og Jack sem Guðlaugur minnist á eru þeir Tom Ince og Jack Robinson.
TIL BAKA
Guðlaugur Victor ræðir um eitt og annað
Guðlaugur Victor Pálsson fékk tækifæri til að spreyta sig í tveimur leikjum með aðalliði Liverpool fyrr í sumar. Þrátt fyrir að um æfingaleiki hafi verið að ræða þá var þetta mikilvægt skref fyrir landa okkar. Hann var á dögunum í viðtali við LFCTV, sjónvarpsstöð Liverpool, og hafði þá þetta að segja um eitt og annað á æfingatímabilinu.Æfingar... Æfingarnar hafa verið töluvert erfiðar. Þær miða að því að við séum í góðri æfingu þegar keppnistímabilið hefst. En þetta hefur líka verið mjög gaman og þjálfararnir hafa verið alveg frábærir.
Tækifæri fyrir ungliða... Já, þetta hefur verið mjög gott fyrir mig, Tom og Jack hafa notið góðs af og þetta er tækifæri fyrir okkur alla, Ayala og alla hina. Ég vona að við eigum eftir að sýna honum að eitthvað sé í okkur spunnið.
Samskipti við Roy... Hann hefur mikið rætt við hópinn sem heild en ég vona að hann eigi eftir að ræða við mig einslega um hvað sé í vændum eftir þessa ferð.
Fyrsti leikur... Það var frábært. Ég var bara að vona að ég fengi að spila eitthvað og það var mjög ánægjulegt að fá tækifæri. Mér var alveg sama hvort það hefðu verið þrjár mínútur eða 45.
Draumur um atvinnumennsku... Það hefur verið draumur minn frá því ég var strákur. Ég á ennþá eitthvað í að ná markmiðum mínum og ég á eftir að sanna mig en ég vona að ég eigi eftir að ná því sem ég stefni að.
Tom og Jack sem Guðlaugur minnist á eru þeir Tom Ince og Jack Robinson.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

