| Sf. Gutt
Emiliano Insua er enn ekki farinn frá Liverpool! Það sem meira er þá spilar hann með í dag þegar Liverpool mætir Borussia Monchengladbach í æfingaleik. Sala hans til Fiorentina virðist úr sögunni. Að minnsta kosti fer hann ekkert í bili.
Liverpool og Fiorentina voru búin að ná samkomulagi um vistaskipti Argentínumannsins og sagt var að leikmaðurinn ætti einungis eftir að semja um kaup og kjör. Í síðustu viku komu óvænt fréttir um að Emiliano færi kannski ekki til Fiorentina og var ástæðan sögð miklar kaupkröfur hans. Nú hefur komið á daginn að þessar sögusagnir höfðu við rök að styðjast og Emiliano er ennþá leikmaður Liverpool.
Segja má að furðuleg staða sé kominn upp hjá Liverpool því báðir vinstri bakverðir liðsins, sem voru farnir, eru komnir aftur en í gær var tilkynnt um endurkomu Fabio Aurelio. Svo var verið að tala um að það vantaði vinstri bakverði í liðið hjá Liverpool!
Sem fyrr segir þá er Emiliano í byrjunarliði Liverpool í dag og Fabio er meðal varamanna. Ótrúlegt en satt!
TIL BAKA
Emiliano ennþá hjá Liverpool!
Emiliano Insua er enn ekki farinn frá Liverpool! Það sem meira er þá spilar hann með í dag þegar Liverpool mætir Borussia Monchengladbach í æfingaleik. Sala hans til Fiorentina virðist úr sögunni. Að minnsta kosti fer hann ekkert í bili.Liverpool og Fiorentina voru búin að ná samkomulagi um vistaskipti Argentínumannsins og sagt var að leikmaðurinn ætti einungis eftir að semja um kaup og kjör. Í síðustu viku komu óvænt fréttir um að Emiliano færi kannski ekki til Fiorentina og var ástæðan sögð miklar kaupkröfur hans. Nú hefur komið á daginn að þessar sögusagnir höfðu við rök að styðjast og Emiliano er ennþá leikmaður Liverpool.
Segja má að furðuleg staða sé kominn upp hjá Liverpool því báðir vinstri bakverðir liðsins, sem voru farnir, eru komnir aftur en í gær var tilkynnt um endurkomu Fabio Aurelio. Svo var verið að tala um að það vantaði vinstri bakverði í liðið hjá Liverpool!
Sem fyrr segir þá er Emiliano í byrjunarliði Liverpool í dag og Fabio er meðal varamanna. Ótrúlegt en satt!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

