| Sf. Gutt
Það mokast inn titlarnir! Liverpool vann í dag sinn annan titil þessa vikuna þegar liðið tryggði sér sigur í Bikarkeppni Liverpoolborgar. Keppnin heitir Liverpool Senior Cup á frummálinu. Liverpool vann 3:2 sigur á Skelmersdale United í úrslitaleiknum. Úrslitaleikurinn tilheyrði síðasta keppnistímabili en ekki vannst tími til að spila úrslitaleikinn í vor.
Liverpool tefldi fram ungliðum úr varaliðinu og svo yngri leikmönnum. Liðið var ungt og óreynt þar sem flestir reyndari leikmenn varaliðsins eru í Þýskalandi þar sem Liverpool mætir Borussia Moenchengladbach á morgun. Segja má að Guðlaugur Victor Pálsson hafi verið reyndasti maðurinn í liðinu sem John McMahon sendi til leiks.
Leikurinn hófst af miklum krafti og bæði lið fengu góð færi á upphafsmínútunum. Fyrsta markið kom svo á 11. mínútu þegar Karl Ledsham kom Skelmersdale United yfir með skalla eftir hornspyrnu. Liverpool náði að jafna metin á 24. mínútu. Gerardo Bruna skoraði þá með góðu bogaskoti beint úr aukaspyrnu. Markmaður Skelmersdale hefði átt að geta gert betur en boltinn fór í markið. Gerardo skoraði líka í úrslitaleiknum um síðustu helgi. Liverpool fylgdi þessu marki vel eftir og stuttu síðar var skalla Guðlaugs Victors bjargað á marklínu. Staðan var jöfn þegar flautað var til leikhlés.
Liverpool fékk óskabyrjun í síðari hálfleik og náði forystu eftir eina mínútu. Gerardo tók þá hornspyrnu sem varnarmaðurinn sterki Conor Coady skallaði í mark. Leikmenn utandeildarliðsins lögðu ekki árar í bát og Phil Mooney þrumaði í stöng. Fleiri færi sköpuðust en næsta mark lét bíða eftir sér. Það kom á 85. mínútu og virtist þá sem Liverpool væri búið að gera út um leikinn. Varamaðurinn Michael Ngoo tók góða ripsu upp hægri kantinn og sendi fyrir á Alex Cooper sem skoraði örugglega úr miðjum vítateignum. Alex líkt og Gerando Bruna skoraði líka í úrslitaleiknum fyrir viku. Skelmersdale svarði strax þegar Karl O´Donnell skoraði af stuttu færi. Litlu munaði svo að liðið næði að jafna þegar komið var fram í viðbótartíma en Emmanuel Mendy bjargaði uppi við markið á síðustu stundu. Liverpool náði að landa sigri og bæti titli í safnið sem alltaf má gleðjast yfir!
Þetta er annað árið í röð sem Liverpool vinnur Liverpool Senior Cup og hefur Guðlaugur Victor Pálsson þar með unnið tvo titla með Liverpool en hann var líka í sigurliðinu í fyrra. Þetta var 40. sigur Liverpool í keppninni.
Liverpool: Martin Hansen, John Flanagan, Emmanuel Mendy, Michael Roberts (Nicolaj Kohlert 65. mín.), Andre Wisdom, Conor Coady, Toni Silva (Vincent Weijl 85. mín.), Guðlaugur Victor Pálsson, Nikola Saric, Gerardo Bruna (Michael Ngoo 76. mín) og Alex Cooper.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Conor Coady. Hann og Andre Wisdom voru eins og klettar í vörninni en Conor var aðeins betri þeirra tveggja.
Liverpool endaði þar með síðasta keppnitímabili með tvo titlana sem liðið vann þessa vikuna. Liverpool Senior Cup og Lancashire Senior Cup verða í vörslu Liverpool næsta árið. Það bætist svo vonandi á afrekaskrána á þessari leiktíð og þá stærri titlar.
Hér eru myndir af sigurvegurunum af Liverpoolfc.tv.
TIL BAKA
Liverpool Liverpool bikarmeistari!

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan