| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Af HM
Fjórir leikmenn Liverpool voru í eldlínunni á HM í dag. Tveir þeirra halda áfram keppni, en hinir tveir halda brátt heim á leið.

Það var hnípinn fyrirliði sem gekk af velli eftir útreiðina sem enska landsliðið hlaut í viðureign sinni við sprækt þýskt landslið í fyrri leik dagsins á HM. Steven Gerrard spilaði allan leikinn fyrir England og sömuleiðis Glen Johnson. Jamie Carragher kom hinsvegar ekki við sögu þar sem Matthew Upson hélt sæti sínu í liðinu eftir ágæta frammistöðu gegn Slóvenum. Upson skoraði mark Englendinga en átti að öðru leyti hörmulegan dag í hjarta varnarinnar, rétt eins og John Terry, en lokatölur leiksins urðu 4-1 fyrir Þjóðverjum!
Þjóðverjar komust í 2-0 eftir rúmlega hálftíma leik og Englendingar virtust á heimleið en eftir að Matthew Upson minnkaði muninn með góðum skalla eftir flotta fyrirgjöf Gerrard vaknaði von í brjóstum Englendinga. Fyrirliðinn fór fyrir sínum mönnum með mikilli baráttu og allt útlit var fyrir að Englendingum tækist að jafna.
Það tókst þeim líka þegar Frank Lampard skoraði með glæsilegu skoti í slána og inn. Englendingar fögnuðu og skelfing greip um sig meðal Þjóðverja. En af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ákvað dómari leiksins að dæma markið ekki gilt. Aðstoðardómarinn hafði flaggað og metið það svo að boltinn hefði ekki farið yfir línuna. Þeir tveir voru líklega þeir einu á vellinum sem sáu ekki að boltinn fór augljóslega langt yfir marklínuna og því var fullkomlega löglegt mark tekið af Englendingum.
Það er auðvitað ómögulegt að segja hvort Englendingar hefðu komist áfram ef markið hefði fengið að standa. Víst er að þegar á allt er litið voru Þjóðverjarnir sterkari í leiknum, en það er samt sem áður súrt í broti að svona lagað skuli eiga sér stað. Það var mikill kraftur í Englendingum þegar Lampard skoraði seinna markið og alveg ljóst að leikurinn hefði spilast allt öðruvísi ef það hefði verið dæmt gilt. Seinni mörk Þjóðverja komu bæði eftir skyndisóknir þar sem Englendingar voru fáliðaðir í vörninni, enda lögðu þeir allt kapp á að jafna leikinn og sóttu á mörgum mönnum.
Niðurstaðan er þó einfaldlega sú að Englendingar sáu vart til sólar á þessu HM og fara heim með skottið milli lappanna.

Það var meiri gleði í herbúðum Argentínumanna í dag, en þeir tryggðu sér sæti í 8 liða úrslitum með góðum 3-1 sigri á Mexikó í seinni leik dagsins á HM. Maxi Rodrigues og Javier Mascherano voru báðir í liði Argentínumanna og áttu fínan leik, eins og allt þeirra lið.
Maxi varð fyrir lítilsháttar hnjaski undir lok leiksins og var í kjölfarið skipt út af en meiðslin litu ekki út fyrir að vera neitt til að hafa áhyggjur af. Hann ætti því að vera klár í slaginn í næsta leik Argentínumanna sem mæta Þjóðverjum í 8 liða úrslitum á laugardaginn kemur.
Hér eru myndir úr viðureign Englands og Þýskalands og hér eru myndir úr leik Argentínu og Mexíkó.

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan