| Heimir Eyvindarson

Del Bosque stendur við bakið á Torres

Fernando Torres hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit það sem af er HM. Vincente Del Bosque þjálfari spænska liðsins er þó ánægður með framlag okkar manns.

Torres hefur átt við meiðsli að stríða frá því í apríl og tók þess vegna ekki þátt í síðustu leikjum Liverpool á tímabilinu. Hann komst aftur á ferðina rétt fyrir HM og skoraði mark í síðasta leik Spánverja fyrir keppnina. Hann hefur tekið þátt í öllum leikjum Spánverja það sem af er mótinu og fengið nokkur ágæt færi, en ekki fundið netmöskvana enn sem komið er.

Þessi markaþurrð Torres hefur valdið aðdáendum spænska liðsins nokkrum vonbrigðum og áhyggjum, enda er það Spánverjum afar mikilvægt að allir þeirra bestu menn finni sig í mótinu. Miklar væntingar eru gerðar til spænska liðsins, enda valinn maður í hverju rúmi, og margir veðja á Spánverja sem næstu heimsmeistara.

Vincente Del Bosque þjálfari spænska liðsins segist ekki hafa miklar áhyggjur af Torres. Hann segist þvert á móti vera ánægður með hans framlag og segir hann eiga stóran þátt í velgengni liðsins.

,,Það er fyrst og fremst mjög jákvætt að hann hafi tekið þátt í öllum leikjunum. Hann var tæpur fyrir mótið en virðist vera að komast í sitt rétta form", segir Del Bosque.

,,Þótt hann hafi ekki náð að skora ennþá þá er hann mjög ógnandi og tekur mikið til sín. Hann veldur varnarmönnum andstæðinga sinna alltaf miklum vandræðum og við njótum góðs af því. Þeir vita að hann er stórhættulegur og eru mjög uppteknir af honum. Þannig losnar um aðra leikmenn."

Torres viðurkennir sjálfur að hann hafi ekki átt sína bestu leiki á HM og sé ekki alveg kominn í rétta formið.

,,Ég er greinilega ekki kominn í mitt besta form ennþá, en ég er að nálgast það", segir Torres í viðtali við Radio Marca.

Torres var skipt af velli snemma í síðari hálfleik í viðureign Spánar og Chile þar sem óttast var að meiðsli hans hefðu tekið sig upp að nýju, en hann segir að það hafi einungis verið varúðarráðstöfun. Hann kenni sér einskis meins.

,,Ég er laus við meiðslin og er við það að detta í 100% form. Ég reikna með að vera með á móti Portúgal á þriðjudaginn."

,,Við munum gefa okkur alla í þann leik. Við erum á þeim stað sem við viljum vera. Við erum að upplifa draum sem við getum gert ógleymanlegan. Nú þurfum við bara að horfa jákvæðum og bjartsýnum augum á framhaldið. Við vitum hvað við getum og höfum mikla trú á okkur, en auðvitað getur allt gerst í fótbolta. Þessvegna þurfum við að vera einbeittari en nokkru sinni."

,,Við vitum allir hvað þetta lið getur verið ótrúlega gott. Við höfum ekki ennþá náð að sýna það fyllilega, en ég hef trú á að okkur takist það áður en yfir lýkur."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan