| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Framtíð Kuyt í óvissu
Framtíð Dirk Kuyt hjá Liverpool er í óvissu, segir Hollendingurinn harðduglegi.

Það er óhætt að segja að eitt og annað sé í óvissu á Anfield þessa dagana. Leitin að eftirmanni Rafael Benítez gengur fremur hægt og helstu stjörnur félagsins, Steven Gerrad, Fernando Torres og Javier Mascherano, hafa lýst því yfir að þeir viti ekki hvort þeir verði í herbúðum félagsins á næstu leiktíð. Nú bætist Hollendingurinn Dirk Kuyt í þennan hóp leikmanna, en hann segir í viðtali við Liverpool Echo í dag að hann viti lítið um framhaldið.
Sem stendur segist Kuyt eingöngu einbeita sér að því að standa sig vel á HM, en hann hefur átt góða leiki með hollenska liðinu sem hefur unnið alla leiki sína á mótinu til þessa.
,,Ég einbeiti mér bara að HM núna. Þegar mótinu lýkur fer ég yfir stöðuna og tek ákvörðun um framhaldið", segir Kuyt.
Það var Rafa Benítez sem keypti Kuyt á sínum tíma og einhverjar sögusagnir hafa verið uppi um að hann kunni að vera á leið til Inter, þar sem Rafa verður við stjórnvölinn næsta vetur.
Ég hef í sjálfu sér ekkert heyrt í Benítez eftir að hann fór frá Liverpool. Hann hefur að vísu sent mér sms eftir leiki Hollands og óskað mér til hamingju með gott gengi, en við höfum ekkert rætt félagaskipti."
,,Ég á ennþá tvö ár eftir af samningi mínum við Liverpool. Mér líður vel í borginni og ég hef gaman af því að spila fyrir félagið, en ég veit samt ekkert hvað verður uppi á teningnum hjá mér næsta vetur. Það er allt í óvissu."
,,Það ræðst auðvitað mikið af því hvaða stjóra við fáum og eins hvort okkur tekst að krækja í fleiri góða leikmenn. Við sjáum hvað setur. Eins og er er ég bara með hugann við HM."

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan