L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
22.06.2010 22:06
|
Sf. Gutt
Af HM
Lokaumferð riðlakeppninnar hófst í dag. Nú ræðst hvaða leikmenn Liverpool verða áfram í Suður Afríku og hverjir fara í sumarfrí.
Maxi Rodriguez var í byrjunarliði Argentínumanna sem mættu Grikkjum. Argentínumenn áttu sæti víst í sextán liða úrslitum og því var Javier Mascherano hvíldur. Sotirios Kyrgiakos var í vörn Grikkja sem áttu möguleika á áframhaldi með sigri eða jafntefli.
Argentínumenn sóttu frá upphafi til enda og unnu að lokum 2:0. Þeir Martin Demichelis og nafni hans Palermo skoruðu undir lok leiksins. Argentínumenn unnu B riðil og Suður Kórea fylgir þeim áfram eftir 2:2 jafntefli við Nígeríu.
Maxi stóð sig vel og einu sinni nærri því að skora en markmaður Grikkja varði vel frá honum. Soto stóð vaktina vel í vörn Grikkja og endaði leikinn sem fyrirliði. Hann er þó kominn í sumarfrí eftir góða framgöngu í þeim tveimur leikjum sem hann spilaði.
Hér
eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
Fyrr í dag réðust úrslit í A riðli og fóru Úrúgvæ og Mexíkó áfram. Tveir fyrrum leikmenn Liverpool, Alou Diarra og Djibril Cisse, voru í mikið breyttu byrjunarliði Frakka sem töpuðu 2:1 fyrir Suður Afríku. Alou, sem reyndar aldrei lék með Liverpool, var fyrirliði Frakka. Hann leikur nú með Bordeaux.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir