| Sf. Gutt

Af HM

Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku voru að bæði í gær og dag. Þeim gekk misjafnlega. Fyrrverandi leikmenn komu líka við sögu.

Í gær mættust Slóvakía og Paragvæ. Martin Skrtel var í byrjunarliði Slóvaka en hann eins og félagar hans réðu ekki við Paragvæ sem vann 2:0. Slóvakar eru með eitt stig og eiga litla möguleika á að komast áfram. Takist þeim að vinna Ítali í síðustu umferð riðilsins er þó möguleiki.

Fernando Torres kom inn í byrjunarlið Spánverja í fyrsta sinn í kvöld eftir meiðslin sem hann varð fyrir í apríl. Evrópumeistararnir mættu Hondúras og unnu 2:0. Spánverjar áttu leikinn með húð og hári og hefðu átt að vinna enn stærri sigur.

David Villa skoraði bæði mörkin. Hann átti svo möguleika á að innsigla þrennu úr víti en hann skaut framhjá. Fernando átti þokkalegan leik í sókninni en tókst ekki að nýta þau færi sem hann fékk. Jose Reina var á bekknum að venju. Spánverjar eru enn ekki öruggir með áframhald. 

Hér og hér eru myndir úr leikjunum, sem um er fjallað, af Liverpoolfc.tv.

Af fyrrverandi leikmönnum má nefna að Mark Gonzalez skoraði eina markið í leik Chíle og Sviss í dag. Hann skoraði með skalla seint í leiknum. Chíle er svo til komið áfram úr sínum riðli.

Harry Kewell vegnaði ekki eins vel en hann var í byrjunarliði Ástrala gegn Ghana um helgina. Hann var rekinn af velli, fyrir að verja með hendi á marklínu, um miðjan fyrri hálfleik og leikur líklega ekki meira á HM. Þetta var fyrsti leikur hans í keppninni og lánið var sannarlega ekki með Harry. Fyrir fjórum árum meiddist hann og gat ekki spilað í öllum leikjum Ástrala. Leiknum lauk með jafntefli 1:1.
 
Nicolas Anelka leikur ekki meira á HM en hann var rekinn úr herbúðum Frakka eftir orðskak við landsliðsþjálfarann. Allt hefur verið í rulgi og þvælu innanbúðar hjá Frökkum og óvíst er að liðið komist upp úr sínum riðli.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan