Forsíða

Frétt

19.06.2010 12:06 | Grétar Magnússon

Æfingaleikir á undirbúningstímabilinu

Félagið hefur staðfest nokkra leiki á undirbúningstímabilinu.  Fyrsti leikurinn er þann 17. júlí í Austurríki.

Fyrstu mótherjarnir verða Sádi-Arabísku meistararnir í Al Hilal.  Þann 21. júlí verður leikið við Grasshopper frá Sviss og þremur dögum síðar er leikur gegn Kaiserslautern og þá í Þýskalandi.

Liðið kemur svo heim til Englands vegna leiks í undankeppni Evrópudeildarinnar þann 29. júlí og verður síðari leikurinn 5. ágúst.  Í millitíðinni verður reyndar leikinn æfingaleikur í Þýskalandi við Borussia Moenchengladbach þann 1. ágúst.

Deildin byrjar svo helgina 14.-15. ágúst og koma þá Arsenal menn í heimsókn á Anfield.

Hér má sjá undibúningstímabilið í heild sinni:

Júlí 2010:

16. Dregið í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

17. leikið gegn Al Hilal í Austurríki.

21. leikið gegn Grasshoppers í Sviss.

24. leikið gegn Kaiserslautern í Þýskalandi.

29. fyrri leikur í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

Ágúst 2010:

1. leikið gegn Borussia Moenchengladbach í Þýskalandi.

5. síðari leikur í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin