| Sf. Gutt
Tveir fulltrúar Liverpool léku á HM í dag. Báðir skoruðu en fyrir sama liðið þótt þeir spiluðu á móti hvor öðrum. Þeir Daniel Agger og Dirk Kuyt voru í byrjunarliðum Dana og Hollendinga sem mættust um hádegisbilið að íslenskum tíma. Ryan Babel kom ekki við sögu.
Ekkert var skorað í fyrri hálfleik en Danir lentu undir eftir nokkrar sekúndur í þeim síðari. Robin van Persie sendi þá fyrir markið og þar átti Simon Poulsen furðulegan skalla sem fór í bakið á Daniel Agger og í markið. Daniel, sem var með betri mönnum Dana, vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið í Afríkusólinni en boltinn lá í markinu og markið skrifast á hann.
Hollendingar voru betri allan tímann og Dirk gulltryggði sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok. Hann skoraði þá af stuttu færi eftir að félagi hans hafði átt skot í stöng. Dirk var með betri mönnum á vellinum og Hollendingar byrjuðu með góðum sigri.
Þeir félagar Daniel og Dirk skiptust á treyjum eftir leikinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Í gær var Milan Jovanovic í liði Serba sem tapaði 1:0 fyrir Gana. Talið er að Milan muni ganga til liðs við Liverpool seinna í sumar. Að minnsta kosti var lagður grunnur að því að hann komi til Liverpool á valdatíð Rafael Benítez. Það á eftir að koma í ljós hvað úr verður í því máli.
Hér eru myndir úr leik Dana og Hollendinga af Liverpoolfc.tv.
TIL BAKA
Af HM
Tveir fulltrúar Liverpool léku á HM í dag. Báðir skoruðu en fyrir sama liðið þótt þeir spiluðu á móti hvor öðrum. Þeir Daniel Agger og Dirk Kuyt voru í byrjunarliðum Dana og Hollendinga sem mættust um hádegisbilið að íslenskum tíma. Ryan Babel kom ekki við sögu. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik en Danir lentu undir eftir nokkrar sekúndur í þeim síðari. Robin van Persie sendi þá fyrir markið og þar átti Simon Poulsen furðulegan skalla sem fór í bakið á Daniel Agger og í markið. Daniel, sem var með betri mönnum Dana, vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið í Afríkusólinni en boltinn lá í markinu og markið skrifast á hann.
Hollendingar voru betri allan tímann og Dirk gulltryggði sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok. Hann skoraði þá af stuttu færi eftir að félagi hans hafði átt skot í stöng. Dirk var með betri mönnum á vellinum og Hollendingar byrjuðu með góðum sigri.
Þeir félagar Daniel og Dirk skiptust á treyjum eftir leikinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Í gær var Milan Jovanovic í liði Serba sem tapaði 1:0 fyrir Gana. Talið er að Milan muni ganga til liðs við Liverpool seinna í sumar. Að minnsta kosti var lagður grunnur að því að hann komi til Liverpool á valdatíð Rafael Benítez. Það á eftir að koma í ljós hvað úr verður í því máli.
Hér eru myndir úr leik Dana og Hollendinga af Liverpoolfc.tv.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

