| SSteinn

Vertu með í stuðningsliði Stand Up United

Mannréttindasamtökin Amnesty International hleyptu nýrri alþjóðlegri herferð af stokkunum þann 11. júní, en hún ber heitið, Vertu með í vörninni...gegn mannréttindabrotum. Herferðin tengir saman Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í Suður-Afríku og baráttuna fyrir mannréttindum. Á meðan landslið í knattspyrnu búa sig undir að berjast um heimsmeistaratitilinn hefur annað lið stillt sér upp til að berjast gegn mannréttindabrotunum. Liðið er Stand Up United.

Margir eiga sér uppáhaldslið í knattspyrnu og/eða sækja sér fyrirmyndir í fótboltahetjur en skilaboð samtakanna í sinni einföldustu mynd eru þau að baráttufólk fyrir mannréttindum eru einnig hetjur! Baráttufólk fyrir mannréttindum starfar í fjandsamlegu umhverfi þar sem heilindi þess og umboð eru dregin í efa. Ósjaldan er það sakað um að svíkja þjóð sína, sögu og menningu vegna mannréttindabaráttu sinnar. Af ótrúlegri þrautseigju og styrk heldur þetta fólk mannréttindabaráttunni gangandi, dag frá degi, þrátt fyrir að sæta hótunum, kúgunum, fangelsisvist og/eða pyndingum, og oft leggur það líf sitt að veði. Stuðningur annars staðar frá skiptir því sköpun. 

Liðsmennirnir 11 í Stand Up United berjast fyrir mannréttindum um heim allan. Markmið þeirra eru hin sömu – jafnrétti, virðing og réttlæti fyrir alla.

Hver svo sem mannréttindin eru, sem þeir berjast fyrir mega liðsmenn Stand Up United eiga von á öflugri andstöðu. En með þínum stuðningi geta þeir unnið sigur.

Amnesty International og FÍFA gerðu saman vídeó sem sjá má hér í fyrir ofan en það sýnir flotta varnarleiki í knattspyrnu og í lok þess er fólk hvatt til að skoða „aðra góða varnarmenn“..að vísu ekki á fótboltavellinum heldur á velli mannréttinda.

Farðu inn á http://www.amnesty.is/heimsmeistarakeppnin-2010 og vertu með í vörninni…gegn mannréttindabrotum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan