| Sf. Gutt
Það hefur ekki heyrst mikið af leit forráðamanna Liverpool að nýjum framkvæmdastjóra síðustu daga. Lítið hefur verið fréttnæmt eftir að það spurðist að Kenny Dalglish væri sjálfur tilbúinn til að taka starfið að sér. Einhverjir fjölmiðar þykjast vita að forráðmenn Liverpool séu ekki alveg sannfærðir um að Kenny sé rétti maðurinn í starfið og hafi ekki hug á að ráða hann.
Það nafn sem oftast er nefnt í sambandi við nýjan framkvæmdastjóra er Roy Hodgson. Enn mun Liverpool ekki hafa gert honum opinbert tilboð en einhverjir fjölmiðlar telja að von sé á tilboði á næstu tveimur dögum. Mohamed Al Fayed, eigandi Fulham, á hugsanlega von á tilboði ef marka má þessi orð hans sem birtust á nokkrum fréttasíðum í dag. ,,Ég held að hann muni ekki fara frá mér. Ég er viss um að hann fær mörg tilboð frá örðum félögum en ég læt ho
num allt í hendur til að hann geti náð árangri og okkur kemur mjög vel saman."
Roy fer hvern næsta dag til Suður Afríku til að vinna sem sparkspekingur fyrir BBC og líklega verða forráðamenn Liverpool að hafa samband við hann áður en hann fer hafi þeir ekki nú þegar gjört svo. Reyndar hefur leit Liverpool að framkvæmdastjóra skiljanlega fallið í skuggann af Heimsmeistarakeppninni. Líklega er það bara gott.
TIL BAKA
Vangaveltur um nýjan stjóra
Það hefur ekki heyrst mikið af leit forráðamanna Liverpool að nýjum framkvæmdastjóra síðustu daga. Lítið hefur verið fréttnæmt eftir að það spurðist að Kenny Dalglish væri sjálfur tilbúinn til að taka starfið að sér. Einhverjir fjölmiðar þykjast vita að forráðmenn Liverpool séu ekki alveg sannfærðir um að Kenny sé rétti maðurinn í starfið og hafi ekki hug á að ráða hann. Það nafn sem oftast er nefnt í sambandi við nýjan framkvæmdastjóra er Roy Hodgson. Enn mun Liverpool ekki hafa gert honum opinbert tilboð en einhverjir fjölmiðlar telja að von sé á tilboði á næstu tveimur dögum. Mohamed Al Fayed, eigandi Fulham, á hugsanlega von á tilboði ef marka má þessi orð hans sem birtust á nokkrum fréttasíðum í dag. ,,Ég held að hann muni ekki fara frá mér. Ég er viss um að hann fær mörg tilboð frá örðum félögum en ég læt ho
num allt í hendur til að hann geti náð árangri og okkur kemur mjög vel saman."Roy fer hvern næsta dag til Suður Afríku til að vinna sem sparkspekingur fyrir BBC og líklega verða forráðamenn Liverpool að hafa samband við hann áður en hann fer hafi þeir ekki nú þegar gjört svo. Reyndar hefur leit Liverpool að framkvæmdastjóra skiljanlega fallið í skuggann af Heimsmeistarakeppninni. Líklega er það bara gott.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

