| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Eftir að leiktíðinni lauk könnuðum við hvað leikmaður ykkur þótti standa sig best í þeim tveimur leikjum sem Liverpool spilaði í maí.

Eins og svo oft áður á leiktíðinni þá var það Jose Reina sem varð fyrir valinu. Hann fékk reyndar tvö mörk á sig gegn Chelsea en tap Liverpool í þeim leik hefði getað verið stærra ef Spánverjinn hefði ekki verið til taks. 

Steven Gerrard kom annar í könnuninni. Hann var manna næstur því að skora í markalausu jafntefli gegn Hull og átti til dæmis skot í stöng á lokamínútu leiksins.  Svo átti hann athyglisverða sendingu, gegn Chelsea, sem mörgum stuðningsmönnum Liverpool þótti bara góð!

Daninn Daniel Agger var í þriðja sæti en hann stóð sig þokkalega í tveimur síðustu leikjunum sem Rafael Benítez stjórnaði Liverpool í. 

Jose Reina 58%
 
Steven Gerrard 12%
 
Daniel Agger 8%
 
Sotirios Kyrgiakos 7%
 
Lucas Leiva 5%
 
Einhver annar 5%
 
Dirk Kuyt 5%
 
Heildarfjöldi atkvæða: 610.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan