| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku

Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Fjórði í röðinni er Maxi Rodriguez.

Nafn: Maxi Rodriguez.
 

Fæðingardagur: 02.01.1981.

Fæðingarstaður: Rosario í Argentínu.

Staða: Miðvallarleikmaður og útherji.

Félög á ferli: Newell's Old Boys, Real Oviedo (lánsmaður), Espanyol, Atletico Madrid og Liverpool.

Fyrsti landsleikur: 08.06.2003 gegn Japan.

Landsleikjafjöldi: 36.

Landsliðsmörk: 10.

Leikir með Liverpool: 17.

Mörk fyrir Liverpool: 1.

Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Maxi missti stöðu sína hjá Atletico Madrid þegar laið á leiktíðina. Liverpool falaðist eftir honum og hann fór til Englands í byrjun árs. Hann þótti standa sig vel hjá Liverpool eftir að hann var búinn að venjast aðstæðum.

Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er duglegur og býr yfir góðri knattækni. Maxi þykir líka góður í spili.

Hver er staða Maxi í landsliðinu? Maxi var ekki öruggur með sæti í liðinu en slapp í hópinn. Hann stóð sig vel með Liverpool og það hjálpaði til við að koma honum á HM.

Hvað um Argentínu? Lið Argentínu átti í erfiðleikum með að tryggja sér farseðil til Suður Afríku en það er ekki nokkur vafi á því að liðið á að geta náð langt ef bestu menn liðsins ná sér á strik. Sumir sparkspekingar telja Diego Maradona ekki rétta manninn til að stjórna liðinu.  

Alþjóðlegir titlar Argentínumanna: Heimsmeistarar 1978 og 1986.

Besti Argentínumaður allra tíma? Diego Maradona er auðvitað besti knattspyrnumaður sem Argentína hefur alið og sumir telja hann besta leikmann í allri sögu knattspyrnunnar. Hann bjó yfir töfrum sem á köflum voru óskiljanlegir venjulegu fólki.

Vissir þú? Maxi skoraði fyrsta mark Argentínumanna á valdatíð Diego Maradona. Það var sigurmark 1:0 gegn Skotum.

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan