| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku

Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Annar í röðinni er Sotirios Kyrgiakos.

Nafn: Sotirios Kyrgiakos.

Fæðingardagur: 23.07.1979.

Fæðingarstaður: Trikala í Grikklandi.

Staða: Miðvörður.

Félög á ferli: Panathinaikos, Agios Nikolaos (lánsmaður), Rangers, Eintracht Frankfurt, AEK Athens og Liverpool.

Fyrsti landsleikur: 13.02.2002 gegn Svíþjóð.

Landsleikjafjöldi: 58.

Landsliðsmörk: 4.

Leikir með Liverpool: 21.

Mörk fyrir Liverpool: 1.

Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Sá gríski mætti á svæðið eftir að leiktíðin byrjaði. Hann spilaði fáa leiki framan af. Ekki þótti hann sérlega sannfærandi í fyrstu leikjunum en eftir áramót fékk hann fleiri tækifæri og þá kom í ljós að hann var vel nothæfur. 

Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er harðskeyttur varnarmaður og fastur fyrir. Hann er sérlega sterkur skallamaður.

Hver er staða Sotirios í landsliðinu? Hann hefur verið fastamaður í liðshópnum en hann hefur ekki alltaf verið í byrjunarliðinu. 

Hvað um Grikkland? Lið Grikkja komst áfram í gegnum umspil. Liðið er mjög seigt en það er ekki gott að segja hvað það nær langt í Suður Afríku. 

Alþjóðlegir titlar Grikkja: Evrópumeistarar landsliða 2004.
 
Vissir þú? Líklega hefur enginn leikmaður Liverpool verið með síðara hár en Sotirios.
 
Besti Grikki allra tíma? Grikkir hafa átt góða knattspyrnumenn í gegnum tíðina en það er ekki gott að segja hver er sá besti af þeim öllum.

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan