| Heimir Eyvindarson

Danny Wilson enn í sigtinu

Skotinn ungi Danny Wilson er enn undir smásjánni hjá Liverpool. Brotthvarf Rafa Benítez breytir engu þar um.

Wilson þessi er 18 ára Skoti og leikur með Glasgow Rangers. Rafa Benítez hafði mikinn hug á því að semja við hann, eins og við höfum áður sagt frá, og þeir sem hafa haft af þvi áhyggjur að nú þegar Rafa er horfinn á braut verði ekkert af komu piltsins til Liverpool virðast geta andað léttar.

Glasgow Evening Times segir frá því í dag að Liverpool eigi í samningaviðræðum við Rangers um félagaskiptin og allar líkur séu á því að hann spili í treyju Liverpool næsta vetur.

Blaðið segir jafnframt að landi Wilson, Kenny Dalglish, sé spenntastur Liverpool manna fyrir því að ná samningum við kappann og stjórni viðræðunum við sína fyrrum erkifjendur frá Glasgow. En Dalglish lék sem kunnugt er með hinu stórveldinu að norðan, Glasgow Celtic, áður en hann kom til Liverpool fyrir metfé árið 1977.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan