| Ólafur Haukur Tómasson
Hinn bráðefnilegi David Amoo, sem hefur farið mikinn með varaliði Liverpool undanfarin tvö tímabil eftir að hann kom upp úr unglingaliði Liverpool, hefur skrifað undir nýjan samning við Liverpool sem mun halda honum hjá félaginu til ársins 2012. Samningur hans hefði runnið út í lok júní.
Þessi öskufljóti kantmaður er mikils metinn innan félagsins en hann hefur nokkru sinnum æft með aðalliðinu og líklegt er að þau skipti munu verða fleiri í framtíðinni. Hann kom í unglingastarf Liverpool frá Millwall árið 2007 og var færður yfir á Melwood síðasta sumar.
Amoo þykir einn af mest spennandi bitunum í varaliðinu og leynir sér ekki að strákurinn hefur þá hæfileika sem þarf til að ná langt í íþróttinni. Nú mun hann freista þess að taka næsta skref hjá Liverpool, sem er að vinna sér inn sæti í aðalliðshópnum.
Nú fyrir skömmu ákvað Liverpool að framlengja ekki samningana við varaliðsmennina Chris Oldfield og Robbie Threlfall. Báðir eru þeir enskir en þóttu ekki sína nóg til að vinna sér inn nýjan samning, þeir bætast í hópinn með Fabio Aurelio og David Martin sem fengu ekki heldur framlengingu á samningum sínum.
TIL BAKA
David Amoo framlengir
Hinn bráðefnilegi David Amoo, sem hefur farið mikinn með varaliði Liverpool undanfarin tvö tímabil eftir að hann kom upp úr unglingaliði Liverpool, hefur skrifað undir nýjan samning við Liverpool sem mun halda honum hjá félaginu til ársins 2012. Samningur hans hefði runnið út í lok júní.Þessi öskufljóti kantmaður er mikils metinn innan félagsins en hann hefur nokkru sinnum æft með aðalliðinu og líklegt er að þau skipti munu verða fleiri í framtíðinni. Hann kom í unglingastarf Liverpool frá Millwall árið 2007 og var færður yfir á Melwood síðasta sumar.
Amoo þykir einn af mest spennandi bitunum í varaliðinu og leynir sér ekki að strákurinn hefur þá hæfileika sem þarf til að ná langt í íþróttinni. Nú mun hann freista þess að taka næsta skref hjá Liverpool, sem er að vinna sér inn sæti í aðalliðshópnum.
Nú fyrir skömmu ákvað Liverpool að framlengja ekki samningana við varaliðsmennina Chris Oldfield og Robbie Threlfall. Báðir eru þeir enskir en þóttu ekki sína nóg til að vinna sér inn nýjan samning, þeir bætast í hópinn með Fabio Aurelio og David Martin sem fengu ekki heldur framlengingu á samningum sínum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

