| Ólafur Haukur Tómasson

Torres verður áfram

Miklar vangaveltur hafa verið í kringum skæðustu stjörnur Liverpool eftir að félagið endaði í sjöunda sæti deildarinnar sem gefur ekki rétt á sæti í Meistaradeild Evrópu, því var talið að stærstu nöfnin í liði Liverpool gætu leitað á önnur mið þar sem farmiði í þá keppni væri í boði.

Fernando Torres þykir vænlegasti bitinn í liði Liverpool og er talið að lið eins og Chelsea og Barcelona muni reyna að gera Liverpool tilboð þegar líður á sumarið en eins og flestir vita er fjárhagur Liverpool ekki góður og því gætu ríkari lið reynt að nýta sér það.

Pepe Reina, liðsfélagi Fernando hjá Liverpool og í spænska landsliðinu, sagði á dögunum að hann hefði sagt við sig að hann myndi ekki fara frá Liverpool og nú hefu umboðsmaður Fernando, Jose Antonio Peton, slegið í sömu strengi og sagt að skjólstæðingur sinn verði áfram í herbúðum í Liverpool á næstu leiktíð.

"Eins og staðan er núna þá get ég fullvissað stuðningsmennina um að Fernando muni halda áfram hjá Liverpool á næstu leiktíð. Það er allt undir hugarfari Liverpool komið en Fernando er ánægður hjá félaginu og er með góðan samning. Liverpool hefur ekki rætt við okkur um framtíðina svo hann er nú aðeins að undirbúa sig fyrir Heimsmeistarakeppnina." sagði Peton.

Þetta eru vægast sagt góðar fréttir fyrir Liverpool ef að satt reynist en enn leikur örlítill vafi á framtíð Steven Gerrard eftir óljós svör sem hann gaf á fréttamannafundi fyrir skömmu. Lykilmenn eins og þeir Fernando Torres, Steven Gerrard og Javier Mashcerano, eru allir orðaðir við önnur lið og líklega mun framtíð þeirra skýrast eftir Heimsmeistaramótið.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan