Forsíða

Frétt

23.05.2010 00:05 | Sf. Gutt

Marouane Chamakh hafnaði Liverpool

Tilkynnt var í dag að Marouane Chamakh hafi gengið til liðs við Arsenal á frjálsri sölu. Hann mun hafa hafnað tilboði frá Liverpool.

Marouane er marakkóskur sóknarnaður og hefur hefur leikið með Bordaux í Frakklandi. Hann hefur staðið sig vel með liðinu og skorað þó nokkuð af mörkum. Hann hefur látið hafa eftir sér að forráðamenn Liverpool hafi verið í sambandi við hann en hann hafi ekki haft áhuga á að ganga til liðs við liðið.

Marouane sagði að hann hafi haldið með Arsenal frá því hann var strákur og því hafi hann ekki þurft að hugsa sig mikið um þegar Arsenal sýndi honum áhuga. Svoleiðis fór það.




















Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin