| Ólafur Haukur Tómasson
Serbneski sóknarmaðurinn Milan Jovanovic segist gífurlega spenntur fyrir því að vera að ganga í raðir Liverpool en svolítið er síðan hann náði samkomulagi um að semja við Liverpool, hins vegar hefur atvinnuleyfi hans verið einhvern tíma að komast í gegn en líklega verður ekki mikið mál að ná því.
Jovanovic er núna á mála hjá belgíska liðinu Standard Liege en samningur hans við félagið rennur út í sumar og mögulega verður hann opinberlega leikmaður Liverpool þann 1.júní næst komandi.
Hann kemur ásamt Jonjo Shelvey sem keyptur var nýlega frá Charlton og hugsanlega gæti skoski miðvörðurinn Danny Wilson einnig orðið leikmaður Liverpool á næstu dögum.
Serbinn öflugi segist ánægður með að vera að ganga í raðir Liverpool og hann hafi hafnað mörgum góðum tilboðum til að komast til Liverpool: "Þeir áttu slæmt tímabil en Liverpool er enn þá Liverpool. Ég sé þetta sem stað sem ég vil vera á. Tilhugsunin um að spila á Anfield er gífurleg hvatning fyrir mig." sagði Jovanovic.
Hann verður í eldlínunni á Heimsmeistaramótinu líkt og nokkrir aðrir leikmenn Liverpool. Serbar eru í erfiðum riðli með Þjóðverjum, Ghana og Áströlum en miðað við frammistöðu þeirra í forkeppninni þá gæti liðið náð langt í keppninni.
TIL BAKA
Milan orðinn spenntur
Serbneski sóknarmaðurinn Milan Jovanovic segist gífurlega spenntur fyrir því að vera að ganga í raðir Liverpool en svolítið er síðan hann náði samkomulagi um að semja við Liverpool, hins vegar hefur atvinnuleyfi hans verið einhvern tíma að komast í gegn en líklega verður ekki mikið mál að ná því.Jovanovic er núna á mála hjá belgíska liðinu Standard Liege en samningur hans við félagið rennur út í sumar og mögulega verður hann opinberlega leikmaður Liverpool þann 1.júní næst komandi.
Hann kemur ásamt Jonjo Shelvey sem keyptur var nýlega frá Charlton og hugsanlega gæti skoski miðvörðurinn Danny Wilson einnig orðið leikmaður Liverpool á næstu dögum.
Serbinn öflugi segist ánægður með að vera að ganga í raðir Liverpool og hann hafi hafnað mörgum góðum tilboðum til að komast til Liverpool: "Þeir áttu slæmt tímabil en Liverpool er enn þá Liverpool. Ég sé þetta sem stað sem ég vil vera á. Tilhugsunin um að spila á Anfield er gífurleg hvatning fyrir mig." sagði Jovanovic.
Hann verður í eldlínunni á Heimsmeistaramótinu líkt og nokkrir aðrir leikmenn Liverpool. Serbar eru í erfiðum riðli með Þjóðverjum, Ghana og Áströlum en miðað við frammistöðu þeirra í forkeppninni þá gæti liðið náð langt í keppninni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

