Forsíða

Frétt

20.05.2010 02:05 | Heimir Eyvindarson

Capello freistaði Carra

Eins og við höfum áður sagt frá hér á síðunni hefur Jamie Carragher gefið kost á sér í enska landsliðið á ný og stefnir nú ótrauður á að komast í HM hópinn.

Nokkuð er um liðið síðan Carra lagði landsliðsskóna á hillunna, en hann hætti með landsliðinu til að geta einbeitt sér enn betur að Liverpool. Carragher viðurkennir að möguleikinn á að fá að spila undir stjórn Fabio Capello hafi kveikt áhugann á landsliðssæti að nýju.

,,Tilhugsunin um að fá kannski tækifæri til að spreyta mig undir stjórn Hr. Capello gerði útslagið", segir Carragher sem þessa stundina er staddur í æfingabúðum í Austurríki ásamt 29 öðrum sem keppast um sæti í lokahópi Englendinga fyrir HM í sumar.

Carragher hefur lýst því yfir að hann hafi áhuga á að leggja fyrir sig þjálfun eða framkvæmdastjórn þegar ferli hans sem leikmanns lýkur og talið er að tækifærið til að kynnast aðferðum Fabio Capello af eigin raun hafi ekki dregið úr áhuga hans á að reyna við landsliðið á nýjan leik.

,,Capello hefur verið einn besti stjórinn í boltanum síðustu 10-15 árin. Ég hef alltaf fylgst vel með og velt fyrir mér aðferðum og taktík hinna bestu. Ég spyr Stevie (Gerrard) alltaf hvernig stjórinn hafi verið og hvað hann hafi látið liðið gera þegar hann kemur af landsliðiðsæfingum. Það að jafn frábær stjóri skuli vera við stjórnvölinn hjá Englendingum var þess vegna mjög mikilvægt atriði fyrir mig."

,,Vonandi tekst mér að heilla Capello bæði innan vallar sem utan og sannfæra hann um að ég eigi heima í hópnum", segir Carragher sem hefur tíma fram til 1. júní til að ávinna sér traust Ítalans, en þá verður lokahópur Englendinga fyrir HM tilkynntur.

Capello hefur ekki gefið Carra nein loforð um sæti í lokahópnum, en telja má líklegt að hann komi sterklega til greina því Ítalinn hefði tæpast lagt það á sig að sannfæra Jamie um að endurskoða ákvörðun sína, ef hann hefði hann ekki sterklega í huga.

Við krossum fingur fyrir Carra.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin