| Sf. Gutt

Rafa vill vera áfram hjá Liverpool!

Rafael Benítez segist vilja vera áfram hjá Liverpool. Í nokkrum viðtölum að undanförnu hefur hann ítrekað þessa ósk sína. Hann hafði þetta að segja í viðtali við staðarblaðið Echo fyrir nokkrum dögum.

,,Ég er mjög ánægður hérna í Liverpool. Ég hef alltaf verið ánægður hérna og mig langar að vera lengi hérna sé það í boði. Framtíð mín er hjá Liverpool. Ég á fjögur ár eftir af samningi mínum og ég vil ná árangri hérna. Ég vonast til að geta bætt liðið og komið því í baráttu um titla."

Í fyrrnefndu viðtali vísaði Rafael Benítez því á bug að hann hafi fengið tilboð um að þjálfa lið Sameinuðu arabísku furstadæmana. Einhverjir fjölmiðlar birtu fréttir þess efnis að Rafael hefði fegnið tilboð þaðan um gull og græna skóga. Svo mun ekki hafa verið eftir því sem Rafa segir.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan