| Ólafur Haukur Tómasson

Jonjo minnir á Stevie

Enn einu sinni fer einhver tengdur 2. deidarfélaginu Charlton Athletic fögrum orðum um nýjustu viðbótina í liði Liverpool, hinum bráðefnilega Jonjo Shelvey sem keyptur var til Liverpool fyrir skömmu. Steve Gritt, yfirmaður unglingastarfs Charlton, er viss um að kaup Liverpool á Jonjo muni reynast félaginu frábærlega.

"Við vissum að Jonjo væri einstakr leikmaður, jafnvel áður en hann spilaði með aðalliðinu. Hann er einn af þessum leikmönnum sem koma í gegnum unglingastarfið örfáu sinnum. Frá unga aldri trúðu allir hjá félaginu að hann myndi þróast í það að verða Úrvalsdeildarleikmaður vegna þess að hann hefur svo mikla hæfileika. Nú er ég fullviss um að hann muni uppfylla allar þessar snemmbúnu væntingar.

Kannski var hann fljótari í aðalliðið en við bjuggumst við. Alan Pardew (fyrrum knattspyrnustjóri Charlton) hefur fengið mikið hrós fyrir að hafa komið honum í liðið því aðrir þjálfarar hefðu kannski ekki gert það. Það var engu að síður undir Jonjo komið að sanna það að hann myndi verða góður leikmaður.

Á síðustu árum höfum við séð þroskun á hæð hans og styrk. Ég er viss um að hann eigi enn eftir að bæta á sig smá þyngd og þegar það gerist þá hefur hann allt sem að þarf í Úrvalsdeildina eins og hún er í dag." sagði Gritt.

Margir hafa líkt leikstíl Jonjo við Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, og Gritt er einn þeirra sem sér líkindi með þeim en hann á þó langt í land með að geta jafnast á við Gerrard.

"Það hefur verið sagt áður og ég verð að vera sammála því að hann hefur smá Gerrard í sér. Hann getur farið á milli teiga, hann hefur góða sýn fyrir sendingum og hann sér möguleika sem aðrir sjá kannski ekki. Hann er þannig leikmaður að ef hann sér markvörðinn ekki á línunni og hann er 20 - 30 metra frá markinu þá er hann nógu áræðinn til að skjóta.

Ef hann hefur einhverja galla þá myndir hann líklega viðurkenna það að hann þyrfti að bæta sig í varnarleiknum. Vegna þess að hann er svona sókndjarfur leikmaður þá eru vitaskuld hlutir í varnarleik hans sem hann þarf að bæta. Ég er fullviss um að hann muni gera það.

Flutningurinn til Liverpool mun sýna honum það að hann er góður leikmaður. Ég get ekki ímyndað mér að Jonjo hafi einhverjar efasemdir um sína eigin getu vegna þess að hann er mjög sjálfsöruggur strákur. Ég held enginn hafi séð það besta sem mun koma frá honum hingað til og ég vona að við sjáum hann blómstra sem þroskaðann landsliðsmann.

Ef allt gengur vel þá mun Jonjo verða þessi góði leikmaður sem við höfum öll trúað að hann muni verða hjá Liverpool og Charlton mun fá auka pening fyrir afrek hans. Ég er fullviss um að hann verði hágæða leikmaður."

Jonjo er einn af nokkrum ungum Englendingum sem Liverpool hefur fengið til sín á síðustu vikum og mánuðum. Ásamt Jonjo hefur Liverpool fengið til sín Raheem Sterling, Jamie Stephens og Callum Pilkington. Þessir þrír síðastnefndu munu leika með unglingaliðinu til að byrja með en líklegt þykir að Jonjo muni verða í aðalliðinu á næstu leiktíð.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan