| Ólafur Haukur Tómasson
TIL BAKA
Hverjir gætu komið?
Það hefur líklega sjaldan verið jafn erfitt að reyna að ráða fram úr hvernig sumarið á leikmannamarkaðnum muni koma til með að þróast hjá Liverpool F.C. og er margt sem kastar mikilli óvissu á félagið og stefnu þess. Liðinu mistókst að enda í sæti sem gefur rétt á Meistaradeildarsæti, félagið er til sölu, framtíð Rafael Benítez sem knattspyrnustjóra félagsins er óljós og mikil óvissa ríkir um fjármagnið sem hann fái til leikmannakaupa - ef peningar til leikmannakaupa verða þá eftir allt til staðar.
Þessi óvissa stöðvar þó ekki fjölmiðlana sem orða stöðugt einhverja leikmenn við félagið. Líkt og undanfarin ár verður rennt yfir þá leikmenn sem hafa verið hvað mest orðaðir við hugsanlega komu til félagsins. Talið er að reynt verði að hrista rækilega upp í leikmannahópnum í sumar og nokkrir leikmenn mögulega taldir á útleið í sumar. Yossi Benayoun, Albert Riera, Philipp Degen, Fabio Aurelio, Nabil El Zhar og Alberto Aquilani hafa verið vinsæl nöfn í mögulegri hreinsun til að afla fjárs einnig sem að það hafa heyrst raddir um að stórstjörnurnar Fernando Torres og Steven Gerrard gæti leitað á önnur mið. Það má búast við miklum sveiflum í leikmannamálum Liverpool ef marka má allar þær sögusagnir sem hafa verið í gangi en þær munu líklega bara aukast eftir því sem líður á sumarið.
Milan Jovanovic:
Það er nær víst að þessi leikmaður muni koma til Liverpool á frjálsri sölu þegar leikmannaglugginn opnar þann 1.júlí en þá rennur samningur hans við belgíska liðið Standard Liege út. Hann á að vera búinn að ná samkomulagi við Liverpool um kaup og kjör en bíður nú aðeins eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi og samkvæmt leikmanninum sjálfum stendur aðeins það í vegi fyrir því að hann muni spila fyrir Liverpool á næstu leiktíð.
Jovanovic er örvfættur framherji sem spilar einnig á vinstri kantinum og hefur verið í lykilhlutverki hjá Standard Liege sem og í serbneska landsliðinu sem verður á Heimsmeistaramótinu í sumar. Á síðasta ári var hann kjörinn besti leikmaðurinn í belgísku deildinni en þá var hann lykilmaður hjá meistaraliði Standard Liege og skoraði hann tólf mörk í 30 leikjum. Hann hefur skorað 69 mörk í 146 leikjum fyrir Standard Liege en hann hefur verið þar síðan árið 2006. Þar áður var hann á mála hjá Shaktar Donetsk og Lokomotiv Moscow.
Hann er góður klárari þó svo að tölfræðin hans sé kanski ekki sú mest heillandi en hans helsti styrkleiki er tæknin hans. Hann er hæfileikaríkur og þokkalega hraður, einnig sem að hann er afar klókur og staðsetur sig vel á vellinum. Hann er mikið fyrir að koma aftar á völlinn, taka þátt í spilinu og leggja upp fyrir aðra leikmenn. Hann er hávaxinn, sterkur og virkilega duglegur. Hans upprunalega og eftirsóttasta staða er að spila sem efsti framherji, svipað og hjá Fernando Torres en spilar einnig virkilega vel á vinstri kantinum. Hann er sterkur í loftinu og með öflugan vinstri fót.
Hann hefur alla líkamlega og tæknilega burði til að fóta sig í enska boltanum en hann er líka afar áhugaverð persóna. Hann er mikið fyrir fjölmiðlana og er algjörlega óhræddur við að láta skoðun sína í ljós, til dæmis húðskammaði hann samherja sinn í viðtali fyrir að fótbrjóta mótherja - eini samherjinn sem kom ekki leikmanninum til varnar. Hann er duglegur og mikill liðsmaður með mikið keppnisskap. Hann er ákafur og leggur sig allan fram í það sem hann gerir.
Þetta er leikmaður sem kæmi með auka breidd á kantinn og í framlínuna en hann gæti sómað sig vel í liði eins og Liverpool. Atletico Madrid, Real Madrid, AC Milan og Valencia höfðu áhuga á að fá Jovanovic í sínar raðir svo það sýnir að eitthvað er spunnið í þennan 28 ára gamla Serba sem fróðlegt verður að fylgjast með á Heimsmeistaramótinu í sumar.
Danny Wilson:
Það er margt sem bendir til þess að þessi efnilegi varnarmaður muni ganga til liðs við Liverpool á næstu dögum en hann mun líklega kosta félagið tvær og hálfa milljón punda en kaupverðið gæti þó hækkað nái hann tilsettum árangri hjá félaginu. Liverpool mun hafa betur í baráttunni við fleiri lið á borð við Tottenham og Manchester United sem öll hafa áhuga á leikmanninum.
Hann er aðeins átján ára gamall og var kosinn besti ungi leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar á núliðinni leiktíð en hann var í stóru hlutverki hjá Rangers sem varð skoskur bikar- og deildarmeistari á árinu. Hann lék fimmtán leiki á sínu fyrsta tímabili í aðalliðinu og skoraði eitt mark.
Wilson er hávaxinn, sterkur og örvfættur miðvörður sem þreytti frumraun sína með aðalliði Rangers aðeins sautján ára gamall en hann kom í gegnum unglingastarf félagsins. Hann hefur leikið með mörgum af unglingalandsliðum Skotlands og fer ekki á milli mála að mikið efni er hér á ferðinni.
Hann er sterkur í loftinu á báðum endum vallarins, hann tímasetur tæklingar sínar vel og getur einnig komið með flottar sendingar fram völlinn. Hann er hávaxinn og hraustur strákur sem getur verið gífurlega öflugur í föstum leikatriðum. Hann virðist vera með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir allt það sem gengið hefur á hjá honum á leiktíðinni. Hann er mikill leiðtogi en hann hefur borið fyrirliðaband u19 ára liðs Rangers sem og u19 ára lið skoska landsliðsins.
Fyrir þó nokkrum árum síðan fluttist skoskur varnarmaður til Liverpool þegar hann var aðeins 22 ára gamall, það var Alan Hansen sem lék meira en 400 leiki fyrir Liverpool á nokkrum af gullaldarárum félagsins. Hver veit nema að Wilson
gæti fetað í fótspor landa síns og orðið sigursæll varnarmaður hjá Liverpool, þessi strákur hefur alla burði til að slá í gegn í ensku Úrvalsdeildinni og yrði mikill fengur fyrir Liverpool að fá hann í sínar raðir.
Joe Cole:
Þessi enski landsliðsmaður er líklega eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðinum í sumar þar sem samningur hans við Chelsea rennur út í sumar. Hann hefur enn ekki framlengt samninginn við Englandsmeistarana. Liverpool, ásamt Manchester United, Manchester City, Tottenham og fleiri stórum liðum í ensku Úrvalsdeildinni, fylgjast náið með gangi mála og eru talin tilbúin í að bjóða Cole samastað yfirgefi hann Chelsea.
Cole er margreyndur sóknarmaður sem hefur náð góðum árangri í liði Chelsea en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum. þá sérstaklega á núliðnu tímabili, og því hefur honum gengið misvel að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu.
Ásamt því að vera með mikla reynslu úr enska boltanum þá er hann með mikla boltatækni, gott auga fyrir spili og góður skotmaður. Hann getur leikið á báðum köntunum, en sá vinstri er sterkari hjá honum, og sömuleiðis sem sóknartengiliður, hann er því gífurlega fjölbreyttur leikmaður.
Hann hóf feril sinn hjá West Ham þar sem hann spilaði 126 leiki áður en hann flutti sig um set til Chelsea árið 2003 og hjá Chelsea hefur síðan spilað 182 leiki, einnig á hann að baki sér 53 landsleiki fyrir enska landsliðið. Kannski er hann búinn að leika sinn síðasta leik fyrir Chelsea en áhugi er sagður vera til staðar í herbúðum Chelsea um að framlengja dvöl hans hjá félaginu en líklega þyrfti félagið að hækka laun hans yrði hann lengur.
Nái Cole ekki samkomulagi við Chelsea þá er líklegt að hann leiti á önnur mið og vilja einhverjir miðlar meina að Liverpool sé ofarlega á óskalistanum og að Liverpool muni reyna að sannfæra hann um að liðið verði byggt upp í kringum hann og aðra lykilmenn liðsins. Launakröfur hans og sú staðreynd að Liverpool er utan London og ekki í Meistaradeildinni gæti hins vegar orðið fráhrindandi í samningnum en það verður bara allt að koma í ljós á næstunni.
Rafael van der Vaart:
Það virðist ganga brösulega fyrir hinn snjalla Hollending, Rafael van der Vaart, að vinna sér inn fast sæti í hinu stjörnuprýdda liði Real Madrid en hann, líkt og flest allir aðrir Hollendingar hjá félaginu, gegnir að mestu hlutverki varamanns hjá liðinu.
Rafael er örvfættur og mjög fjölhæfur leikmaður sem getur spilað á miðjunni, köntunum og sem sóknartengiliður, sem er að marga mati hans sterkasta staða.
Hann kom í gegnum hið fræga unglingastarf Ajax í Hollandi og var fyrirliði liðsin ungur að árum en þá var liðið prýtt stjörnum á borð Wesley Sneijder og Zlatan Ibrahimovic, svo að einhverjir séu nefndir. Hann átti farsælan feril í Hollandi og var síðan keyptur til þýska liðsins HSV.
Á fyrsta tímabilinu hjá HSV endaði hann markahæstur í liðinu og átti stóran þátt í að tryggja liðinu þriðja sæti deildarinn og Inter Toto bikarinn en í lok tímabilsins var honum afhent fyrirliðabandið. Næstu tvö tímabil voru mjög góð hjá honum en að lokum ákvað hann að segja skilið við HSV og fara til stærra félags.
Hann var keyptur til Real Madrid árið 2008 og þá kostaði hann þrettán milljónir evra og skrifaði undir fimm ára samning við spænska félagið. Hann byrjaði feril sinn hjá Real Madrid frábærlega og var iðinn við að búa til færi og skora mörk. Svo fór að halla aðeins undan fæti hjá honum og honum gekk erfiðlega að vinna sér inn sæti í liðinu aftur.
Real Madrid reyndi að losna við hann, ásamt nokkrum samlöndum hans, síðastliðið sumar og var honum meðal annars ekki úthlutað númer fyrir spænsku deildina en rétt fyrir lokun félagsskiptagluggans fékk hann loks númerið eftir að félagið seldi Wesley Sneijder, Arjen Robben og Klaas-Jan Huntelaar, sem eru allt samlandar hans. Hann fór þó að fá færri og færri tækifæri eftir að félagið keypti leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Kaka og Xabi Alonso en þegar Kaka meiddist fékk hann tækifæri sem hann nýtti og skoraði nokkur mörk.
Það er talið líklegt að Real Madrid muni losa sig við nokkra leikmenn í sumar til að rýma fyrir nýjum og stærri leikmönnum og er Rafael einn þeirra leikmanna sem mögulega eru á útleið. Þegar Liverpool ferðaðist til Madríd til að spila undanúrslitaleikinn gegn Atletico Madrid þá voru nokkrir fjölmiðlar sem greindu frá því að forráðamenn Liverpool hafi hitt forráðamenn Real Madrid eftir leikinn og rætt var um möguleika á kaupum einhverrja leikmanna Real Madrid og hafi Liverpool verið boðið að fá Rafael í sínar raðir - hvort það sé eitthvað varið í þær sögusagnir eða ekki þá mun aðeins tíminn leiða það í ljós.
Kaupverðið á þessum öfluga, leikna og útsjónasama miðjumanni gæti verið í kringum átta til tólf milljónir punda sem ætti ekki að teljast mikið ef tekið er mið á því hversu fjölhæfur og góður leikmaðurinn er. Hann hefur lengi verið orðaður við Liverpool, allt frá því hann var hjá Ajax og reglulega síðan.
Þessi óvissa stöðvar þó ekki fjölmiðlana sem orða stöðugt einhverja leikmenn við félagið. Líkt og undanfarin ár verður rennt yfir þá leikmenn sem hafa verið hvað mest orðaðir við hugsanlega komu til félagsins. Talið er að reynt verði að hrista rækilega upp í leikmannahópnum í sumar og nokkrir leikmenn mögulega taldir á útleið í sumar. Yossi Benayoun, Albert Riera, Philipp Degen, Fabio Aurelio, Nabil El Zhar og Alberto Aquilani hafa verið vinsæl nöfn í mögulegri hreinsun til að afla fjárs einnig sem að það hafa heyrst raddir um að stórstjörnurnar Fernando Torres og Steven Gerrard gæti leitað á önnur mið. Það má búast við miklum sveiflum í leikmannamálum Liverpool ef marka má allar þær sögusagnir sem hafa verið í gangi en þær munu líklega bara aukast eftir því sem líður á sumarið.
Milan Jovanovic:Það er nær víst að þessi leikmaður muni koma til Liverpool á frjálsri sölu þegar leikmannaglugginn opnar þann 1.júlí en þá rennur samningur hans við belgíska liðið Standard Liege út. Hann á að vera búinn að ná samkomulagi við Liverpool um kaup og kjör en bíður nú aðeins eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi og samkvæmt leikmanninum sjálfum stendur aðeins það í vegi fyrir því að hann muni spila fyrir Liverpool á næstu leiktíð.
Jovanovic er örvfættur framherji sem spilar einnig á vinstri kantinum og hefur verið í lykilhlutverki hjá Standard Liege sem og í serbneska landsliðinu sem verður á Heimsmeistaramótinu í sumar. Á síðasta ári var hann kjörinn besti leikmaðurinn í belgísku deildinni en þá var hann lykilmaður hjá meistaraliði Standard Liege og skoraði hann tólf mörk í 30 leikjum. Hann hefur skorað 69 mörk í 146 leikjum fyrir Standard Liege en hann hefur verið þar síðan árið 2006. Þar áður var hann á mála hjá Shaktar Donetsk og Lokomotiv Moscow.
Hann er góður klárari þó svo að tölfræðin hans sé kanski ekki sú mest heillandi en hans helsti styrkleiki er tæknin hans. Hann er hæfileikaríkur og þokkalega hraður, einnig sem að hann er afar klókur og staðsetur sig vel á vellinum. Hann er mikið fyrir að koma aftar á völlinn, taka þátt í spilinu og leggja upp fyrir aðra leikmenn. Hann er hávaxinn, sterkur og virkilega duglegur. Hans upprunalega og eftirsóttasta staða er að spila sem efsti framherji, svipað og hjá Fernando Torres en spilar einnig virkilega vel á vinstri kantinum. Hann er sterkur í loftinu og með öflugan vinstri fót.
Hann hefur alla líkamlega og tæknilega burði til að fóta sig í enska boltanum en hann er líka afar áhugaverð persóna. Hann er mikið fyrir fjölmiðlana og er algjörlega óhræddur við að láta skoðun sína í ljós, til dæmis húðskammaði hann samherja sinn í viðtali fyrir að fótbrjóta mótherja - eini samherjinn sem kom ekki leikmanninum til varnar. Hann er duglegur og mikill liðsmaður með mikið keppnisskap. Hann er ákafur og leggur sig allan fram í það sem hann gerir.
Þetta er leikmaður sem kæmi með auka breidd á kantinn og í framlínuna en hann gæti sómað sig vel í liði eins og Liverpool. Atletico Madrid, Real Madrid, AC Milan og Valencia höfðu áhuga á að fá Jovanovic í sínar raðir svo það sýnir að eitthvað er spunnið í þennan 28 ára gamla Serba sem fróðlegt verður að fylgjast með á Heimsmeistaramótinu í sumar.
Danny Wilson:Það er margt sem bendir til þess að þessi efnilegi varnarmaður muni ganga til liðs við Liverpool á næstu dögum en hann mun líklega kosta félagið tvær og hálfa milljón punda en kaupverðið gæti þó hækkað nái hann tilsettum árangri hjá félaginu. Liverpool mun hafa betur í baráttunni við fleiri lið á borð við Tottenham og Manchester United sem öll hafa áhuga á leikmanninum.
Hann er aðeins átján ára gamall og var kosinn besti ungi leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar á núliðinni leiktíð en hann var í stóru hlutverki hjá Rangers sem varð skoskur bikar- og deildarmeistari á árinu. Hann lék fimmtán leiki á sínu fyrsta tímabili í aðalliðinu og skoraði eitt mark.
Wilson er hávaxinn, sterkur og örvfættur miðvörður sem þreytti frumraun sína með aðalliði Rangers aðeins sautján ára gamall en hann kom í gegnum unglingastarf félagsins. Hann hefur leikið með mörgum af unglingalandsliðum Skotlands og fer ekki á milli mála að mikið efni er hér á ferðinni.
Hann er sterkur í loftinu á báðum endum vallarins, hann tímasetur tæklingar sínar vel og getur einnig komið með flottar sendingar fram völlinn. Hann er hávaxinn og hraustur strákur sem getur verið gífurlega öflugur í föstum leikatriðum. Hann virðist vera með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir allt það sem gengið hefur á hjá honum á leiktíðinni. Hann er mikill leiðtogi en hann hefur borið fyrirliðaband u19 ára liðs Rangers sem og u19 ára lið skoska landsliðsins.
Fyrir þó nokkrum árum síðan fluttist skoskur varnarmaður til Liverpool þegar hann var aðeins 22 ára gamall, það var Alan Hansen sem lék meira en 400 leiki fyrir Liverpool á nokkrum af gullaldarárum félagsins. Hver veit nema að Wilson
gæti fetað í fótspor landa síns og orðið sigursæll varnarmaður hjá Liverpool, þessi strákur hefur alla burði til að slá í gegn í ensku Úrvalsdeildinni og yrði mikill fengur fyrir Liverpool að fá hann í sínar raðir.Joe Cole:
Þessi enski landsliðsmaður er líklega eftirsóttasti bitinn á leikmannamarkaðinum í sumar þar sem samningur hans við Chelsea rennur út í sumar. Hann hefur enn ekki framlengt samninginn við Englandsmeistarana. Liverpool, ásamt Manchester United, Manchester City, Tottenham og fleiri stórum liðum í ensku Úrvalsdeildinni, fylgjast náið með gangi mála og eru talin tilbúin í að bjóða Cole samastað yfirgefi hann Chelsea.
Cole er margreyndur sóknarmaður sem hefur náð góðum árangri í liði Chelsea en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum. þá sérstaklega á núliðnu tímabili, og því hefur honum gengið misvel að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu.
Ásamt því að vera með mikla reynslu úr enska boltanum þá er hann með mikla boltatækni, gott auga fyrir spili og góður skotmaður. Hann getur leikið á báðum köntunum, en sá vinstri er sterkari hjá honum, og sömuleiðis sem sóknartengiliður, hann er því gífurlega fjölbreyttur leikmaður.
Hann hóf feril sinn hjá West Ham þar sem hann spilaði 126 leiki áður en hann flutti sig um set til Chelsea árið 2003 og hjá Chelsea hefur síðan spilað 182 leiki, einnig á hann að baki sér 53 landsleiki fyrir enska landsliðið. Kannski er hann búinn að leika sinn síðasta leik fyrir Chelsea en áhugi er sagður vera til staðar í herbúðum Chelsea um að framlengja dvöl hans hjá félaginu en líklega þyrfti félagið að hækka laun hans yrði hann lengur.
Nái Cole ekki samkomulagi við Chelsea þá er líklegt að hann leiti á önnur mið og vilja einhverjir miðlar meina að Liverpool sé ofarlega á óskalistanum og að Liverpool muni reyna að sannfæra hann um að liðið verði byggt upp í kringum hann og aðra lykilmenn liðsins. Launakröfur hans og sú staðreynd að Liverpool er utan London og ekki í Meistaradeildinni gæti hins vegar orðið fráhrindandi í samningnum en það verður bara allt að koma í ljós á næstunni.
Rafael van der Vaart:Það virðist ganga brösulega fyrir hinn snjalla Hollending, Rafael van der Vaart, að vinna sér inn fast sæti í hinu stjörnuprýdda liði Real Madrid en hann, líkt og flest allir aðrir Hollendingar hjá félaginu, gegnir að mestu hlutverki varamanns hjá liðinu.
Rafael er örvfættur og mjög fjölhæfur leikmaður sem getur spilað á miðjunni, köntunum og sem sóknartengiliður, sem er að marga mati hans sterkasta staða.
Hann kom í gegnum hið fræga unglingastarf Ajax í Hollandi og var fyrirliði liðsin ungur að árum en þá var liðið prýtt stjörnum á borð Wesley Sneijder og Zlatan Ibrahimovic, svo að einhverjir séu nefndir. Hann átti farsælan feril í Hollandi og var síðan keyptur til þýska liðsins HSV.
Á fyrsta tímabilinu hjá HSV endaði hann markahæstur í liðinu og átti stóran þátt í að tryggja liðinu þriðja sæti deildarinn og Inter Toto bikarinn en í lok tímabilsins var honum afhent fyrirliðabandið. Næstu tvö tímabil voru mjög góð hjá honum en að lokum ákvað hann að segja skilið við HSV og fara til stærra félags.
Hann var keyptur til Real Madrid árið 2008 og þá kostaði hann þrettán milljónir evra og skrifaði undir fimm ára samning við spænska félagið. Hann byrjaði feril sinn hjá Real Madrid frábærlega og var iðinn við að búa til færi og skora mörk. Svo fór að halla aðeins undan fæti hjá honum og honum gekk erfiðlega að vinna sér inn sæti í liðinu aftur.
Real Madrid reyndi að losna við hann, ásamt nokkrum samlöndum hans, síðastliðið sumar og var honum meðal annars ekki úthlutað númer fyrir spænsku deildina en rétt fyrir lokun félagsskiptagluggans fékk hann loks númerið eftir að félagið seldi Wesley Sneijder, Arjen Robben og Klaas-Jan Huntelaar, sem eru allt samlandar hans. Hann fór þó að fá færri og færri tækifæri eftir að félagið keypti leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Kaka og Xabi Alonso en þegar Kaka meiddist fékk hann tækifæri sem hann nýtti og skoraði nokkur mörk.
Það er talið líklegt að Real Madrid muni losa sig við nokkra leikmenn í sumar til að rýma fyrir nýjum og stærri leikmönnum og er Rafael einn þeirra leikmanna sem mögulega eru á útleið. Þegar Liverpool ferðaðist til Madríd til að spila undanúrslitaleikinn gegn Atletico Madrid þá voru nokkrir fjölmiðlar sem greindu frá því að forráðamenn Liverpool hafi hitt forráðamenn Real Madrid eftir leikinn og rætt var um möguleika á kaupum einhverrja leikmanna Real Madrid og hafi Liverpool verið boðið að fá Rafael í sínar raðir - hvort það sé eitthvað varið í þær sögusagnir eða ekki þá mun aðeins tíminn leiða það í ljós.
Kaupverðið á þessum öfluga, leikna og útsjónasama miðjumanni gæti verið í kringum átta til tólf milljónir punda sem ætti ekki að teljast mikið ef tekið er mið á því hversu fjölhæfur og góður leikmaðurinn er. Hann hefur lengi verið orðaður við Liverpool, allt frá því hann var hjá Ajax og reglulega síðan.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

