| Ólafur Haukur Tómasson

Stuðningsmaður Charlton um Jonjo

Nú líður ekki að löngu þar til Jonjo Shelvey verður opinberlega leikmaður Liverpool eftir að hann skrifaði undir samning við félagið fyrir nokkrum vikum síðan. Kaupverðið er sagt nema 1.7 milljónum punda sem getur seinna meir hækkað upp í rúmlega þrjár milljónir nái hann tilsettum árangri með Liverpool og landsliðinu.

Jonjo er mikils metinn unglingalandsliðsmaður og var farinn að vekja áhuga stóru liðanna í efri deildum og hafnaði hann meðal annars að ganga til liðs við Chelsea fyrir skömmu síðan. En af hverju vildi Liverpool fá hann í sínar raðir og hvernig leikmaður er hann? Glenn Southam sem starfar hjá stuðningsmannasíðu Charlton Athletic, Charltonlife.com, svaraði nokkrum spurningum um strákinn við opinbera heimasíðu Liverpool fyrir skömmu.

Jonjo hefur verið lýst sem einum af bestu ungu leikmönnunum í Englandi - er það sanngjörn upphýfing?

Upphýfingin sem hefur loðað við Jonjo er mjög sanngjörn. Óslípaðir hæfileikar hans eru áberandi, þó við stuðningsmenn Charlton höfum aðeins séð brot af því hjá honum á hans stutta ferli. Eftir að hafa fylgst með honum í unglingastarfi Charlton og með enska landsliðinu þá stendur hann upp úr hópnum og hefur alltaf verið á undan sínum árgangi.

Hverjar eru hans helstu hæfileikar?

Hann er traustur, duglegur og vill ólmur leggja sig fram. Hann hefur frábæra yfirsjón og getur séð sendingar á undan flestum. Hann mætir oft í seint hlaup inn í teiginn líkt og Paul Scholes/Tim Cahill, en hann hefur einnig hæfileikann til að skjóta úr fjarlægð. Hann elskar að spila fótbolta og gefur sig alltaf 110% fram hvort sem um er að ræða æfingaleik eða leik fyrir framan fimmtíu þúsund manns.

Hvernig strákur er hann?

Hann er feiminn og hlédrægur utan vallar, ákafur og ákveðin innan vallar. Hann er með hausinn á réttum stað og hefur frábæra fjölskyldu sér til stuðnings sem sást vel þegar hann skrifaði undir atvinnumannasamning við okkur í stað þess að stökkva á tilboð Chelsea fyrir mikla peninga. Það koma tímar þegar hann getur verið full ákafur í tæklingum en það er einfaldlega bara vegna reynsluleysis.

Hvaða miðjumann í ensku Úrvalsdeildinni myndir þú helst líkja honum við?

Sóknarhæfileikar hans og vilji hans til að fara framar á völlinn henta honum betur sem sóknarsinnaður miðjumaður. Af núverandi leikmönnum deildarinnar þá er hann einna helst líkur ykkar eigin Steven Gerrard - ég held að Jonjo hafi sagst læra af leik fyrirliða ykkar.

Charlton hefur getið af sér marga góða unglinga á síðustu árum, til dæmis Scott Parker - hvar myndirðu telja Shelvey standa í samanburði við þessi nöfn? Er hann ykkar besta framleiðsla?

Það er mjög erfitt að svara þessari spurningu vegna þess að við höfum ekki fengið að sjá hann jafn mikið í aðalliðinu. Parker spilaði reglulega fyrir okkur í Úrvalsdeildinni. Við munum komast að því eftir nokkur ár hvort hann sé sá besti sem hefur komið úr okkar röðum. Við höfum fengið fullt af gæða leikmönnum upp úr okkar röðum sem spila enn meðal þeirra bestu - Scott Parker, Jermaine Defoe, Lee Bowyer, Paul Konchesky, Michael Turner svo einhverjir séu nefndir. Mun Jonjo verða betri en þeir? Kanski. Mín tilfinning er sú að hann geti orðið betri en Parker því hann hefur alla sömu hæfileikana en getur skorað fleiri mörk.

Hversu vonsvikinn ertu með að sjá hann fara?

Auðvitað erum við vonsviknir með að sjá hann far en það sem særir/pirrar fólk mest er það að við höfum ekki fengið að sjá eins mikið af honum í treyju Charlton og við hefðum viljað. Hann hefur einfaldlega ekki leikið mikið fyrir okkur - hvort sem það er fyrir einhverjar taktískar ástæður eða á einhvern undarlegan hátt, að hann sé bara of góður fyrir Charlton í augnablikinu. Þeir dagar að Charlton gat haldið félögum eins og Liverpool frá leikmönnum sínum eru liðnir en við óskum Jonjo alls hins besta. Ég óska þess bara að við hefðum getað fengið að sjá meira af honum því hann mun verða einstakur leikmaður.

Hversu mikið heldurðu að það að æfa með mönnum eins og Steven Gerrard og Javier Mascherano muni koma til með að bæta hann?

Hann gæti kennt þeim sitthvað! Í alvörunni, þá getur þetta aðeins hjálpað þróun hans. Hann er með náttúrulega hæfileika en það að vera í kringum heimsklassa leikmenn mun bara koma til með að bæta leik hans. Með fullri virðingu fyrir núverandi leikmönnum Charlton en þá eru þeir ekki á sömu bylgjulengd og Jonjo þegar kemur að yfirsýn og gæðum - ég held að þið munið sjá hann blómstra í eitthvað einstakt.

Hvað fannst þér um hann þegar þú sást hann spila í fyrsta skiptið?

Ég hef séð hann spila með Charlton og unglingaliðum Englands og hann var frábær en þegar hann spilaði fyrsta aðalliðsleik sinn gegn Coventry sextán ára gamall þá get ég ekki munað eftir öðrum Charlton leikmanni sem hefur eignað sér miðjuna eins og hann gerði (síðan Parker gerði það sama gegn Chelsea mörgum árum áður!). Hann var frábær.

Hvernig hefur hann fullorðnast?

Jonjo er enn óslípaður leikmaður og það sést enn í hans leik en hann hefur orðið meðvitaðri um hlutverk sitt í liðinu. Það er enn nóg að læra í taktísku hlið leiksins hjá honum og ég er viss um að hann muni gera það.

Hver er þín besta minning af honum?

Það verður að vera Coventry leikurinn. Hann var út um allan völl og var frábær. Þetta var augnablikið sem ég held að allir stuðningsmenn Charlton hugsuðu með sér "Við höfum alvöru leikmann hér".

Kemur hann til með að vera einn sá besti í Úrvalsdeildinni?

Það er líklega fullsnemmt að segja það núna en hann verður að fá tækifæri og eftir það munu hæfileikar hans koma í ljós. Ástríða hans og ákefðin til að verða góður stendur upp úr hjá honum - hann mun ekki láta ýta sér af réttu leiðinni eða verða prímadonna, hann vill bara spila. Með góðri þróun og reglulegum tækifærum þá er engin ástæða fyrir því að hann geti ekki orðið fastamaður í Úrvalsdeildinni eftir nokkur ár.

Hvað með fastamaður í enska landsliðinu?

Það er sama og að ofan en af hverju ekki? Hann hefur verið í öllum landsliðunum í sínum aldursflokki. Ég held að félagsskipti til Liverpool muni koma honum í u21 árs landsliðið fljótlega og svo munum við sjá til. Það eru mikið af góðum miðjumönnum í dag og hann gæti þurft að bíða eftir tækifærinu sínu.

Og að lokum, hvar sérðu hann fyrir þér eftir fimm ár?

Ég held að ég tali fyrir hönd allra stuðningsmanna Charlton þegar ég segi að við viljum sjá hann eins sigursælan og hann hugsanlega getur orðið með Liverpool. Með nægilegum tækifærum og leiðbeiningu á Anfield sé ég hann sem langtíma eftirmann Steven Gerrard. Það er ekkert sem að gæti komið í veg fyrir að hann muni reyna að koma sér í gang fyrir Heimsmeistaramótið árið 2014 þegar England reynir að halda titlinum!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan