| Sf. Gutt
Nú á seinni hluta keppnistímabilsins hafa fjölmiðlar reglulega fjallað um áhuga stjórnarmanna Juventus á að fá Rafael Benítez sem framkvæmdastjóra. Nú í vikunni hafa margir fjölmiðlar borið þá sögu að stjórnarmenn Juventus ætli sér að kosta öllu til að fá Rafael sem framkvæmdastjóra á næsta keppnistímabili. Fylgdi sumum sögum að fulltrúar Juventus ætluðu sér að fara til Englands á næstu vikum og láta reyna á hollustu Spánverjans við Liverpool.
Í dag tjáði Manuel Quillon Garcia, umboðsmaður Rafael Benítez, sig um þetta mál í viðtali við vefsíðu BBC. Í viðtalinu sagði hann að það væri ,,algjörlega rangt" að Rafael væri búinn að gera samning við Juventus. Hann neitaði því að nokkrar viðræður hefðu átt sér stað við einhver félög.
Rafael Benítez á fjögur ár eftir af núgildandi samningi sínum við Liverpool en líklegt er að framtíð hans hjá Liverpool verði til umræðu nú á sauðburðartíma þegar yfirstandandi keppnistímabili lýkur. Lokaárangur Liverpool mun líklega ráða miklu um það hvort Rafael heldur áfram sem framkvæmdastjóri Liverpool. En mikilvægasta atriðið í bili er að Rafael er með gildandi samning við Liverpool!
Meðfylgjandi mynd var tekin af Rafael Benítez þegar hann stjórnaði Liverpool á heimavelli Juventus í undanúrslitum Evrópudeildarinnar árið 2005. Þeim leik lauk með jafntefli 0:0 og Liverpool fór áfram 2:1 í úrslitaleikinn þar sem Evrópubikarinn vannst. Skyldi Rafael eiga eftir að stjóran heimamönnum?
TIL BAKA
Algjörlega rangt!
Nú á seinni hluta keppnistímabilsins hafa fjölmiðlar reglulega fjallað um áhuga stjórnarmanna Juventus á að fá Rafael Benítez sem framkvæmdastjóra. Nú í vikunni hafa margir fjölmiðlar borið þá sögu að stjórnarmenn Juventus ætli sér að kosta öllu til að fá Rafael sem framkvæmdastjóra á næsta keppnistímabili. Fylgdi sumum sögum að fulltrúar Juventus ætluðu sér að fara til Englands á næstu vikum og láta reyna á hollustu Spánverjans við Liverpool.Í dag tjáði Manuel Quillon Garcia, umboðsmaður Rafael Benítez, sig um þetta mál í viðtali við vefsíðu BBC. Í viðtalinu sagði hann að það væri ,,algjörlega rangt" að Rafael væri búinn að gera samning við Juventus. Hann neitaði því að nokkrar viðræður hefðu átt sér stað við einhver félög.
Rafael Benítez á fjögur ár eftir af núgildandi samningi sínum við Liverpool en líklegt er að framtíð hans hjá Liverpool verði til umræðu nú á sauðburðartíma þegar yfirstandandi keppnistímabili lýkur. Lokaárangur Liverpool mun líklega ráða miklu um það hvort Rafael heldur áfram sem framkvæmdastjóri Liverpool. En mikilvægasta atriðið í bili er að Rafael er með gildandi samning við Liverpool!
Meðfylgjandi mynd var tekin af Rafael Benítez þegar hann stjórnaði Liverpool á heimavelli Juventus í undanúrslitum Evrópudeildarinnar árið 2005. Þeim leik lauk með jafntefli 0:0 og Liverpool fór áfram 2:1 í úrslitaleikinn þar sem Evrópubikarinn vannst. Skyldi Rafael eiga eftir að stjóran heimamönnum?
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

