| Ólafur Haukur Tómasson

Ian Rush ráðinn til Liverpool!

Fyrir tæplega ári síðan ákvað Liverpool að ráða Kenny Dalglish, goðsögn úr sögu félagsins, til að starfa í Akademíu félagsins sem og að vera sendiherra félagsins. Nú hefur félagið leikið svipaðan leik með því að ráða Ian Rush sem alþjóðlegan sendiherra félagsins en hann mun auglýsa knattspyrnuskóla Liverpool F.C. á heimsvísu. Hann mun einnig vinna með auglýsingarliðinu og hjálpa til með að þróa samstörf við aðra styrktaraðila og vörumerki.

"Rushie er eitt þekktasta nafnið í boltanum og ég er ánægður með að hann samþykkti að starfa með okkur. Við höfum fjárfest mikið í að endurbæta knattspyrnuskólana okkar og með hans hjálp stefnum við á að komast á alþjóða markað á næstu tólf mánuðum. Við erum nú þegar í viðræðum við nokkur áhugasama aðila víðs vegar um heiminn og Ian mun vinna náið með okkar duglegu framkvæmdastjórum í að bæta möguleika knattspyrnuskólanna." sagði Ian Ayre, yfirmaður markaðsmála Liverpool F.C.

"Ég er í skýjunum með að vera aftur hluti af félaginu og vona að samböndin sem ég hef nú þegar í fótbolta- og þjálfunarsamfélaginu muni hjálpa okkur að þróa verkefnið hratt. Hlutverk mitt er að veita tæknilega ráðgjöf í þróun knattspyrnuskólanna og eins, sem er jafn mikilvægt, að hjálpa viðskiptasveit okkar að tryggja að allt verði eins og best verður á kosið fyrir þau börn sem kjósa að taka þátt í þessum skólum sem verða reknir undir merkjum Liverpool." sagði Ian Rush, markahæsti leikmaðurinn í sögu Liverpool.

Það þykir strax vera farið að bera árangur að Kenny Dalglish skuli vinna með Akademíunni og félagið á núna auðvelt með að laða að sér unga og efnilega stráka frá Bretlandseyjum og líklegast ætti það ekki að vera minna fráhrindandi fyrir unga og efnilega pilta að fá að vinna með Ian Rush.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan