| Sf. Gutt
Spá Mark Lawrenson
Burnley v Liverpool
Úrskurður: Burnley v Liverpool 1:2.
TIL BAKA
Mark spáir í spilin
Nú styttist í endalok ensku Úrvalsdeildarinnar og Liverpool leika sinn þriðja síðasta leik í deildinni. Að þessu sinni er leikið við Burnley sem eru svo gott sem fallnir úr Úrvalsdeildinni en aðeins kraftaverk getur bjargað liðinu.
Leikmenn Liverpool gátu leyft sér að setjast upp í flugvél eftir leikinn við Atletico Madrid en eftir erfitt ferðalag til Spánar tapaði liðið 1-0. Ágætis möguleikar eru á því að liðið komist í úrslitaleikinn en seinni leikurinn fer fram á Anfield nú á fimmtudaginn næsta.
Eftir úrslit helgarinnar til þessa má segja að möguleikinn á fjórða sætinu sé enn til staðar en liðið þarf þó að vinna þá leiki sem eftir eru.
Fróðleikur...
- Burnley sitja í næst neðsta sæti deildarinnar með 27 stig eftir 34 leiki.
- Liverpool sitja í því sjöunda með 59 stig eftir 35 leiki.
- Burnley hafa skipt um framkvæmdarstjóra á tímabilinu en það var þó ekki gert vegna slælegs gengis en Owen Coyle, stjóri þeirra fór til Bolton þegar liðið rak Gary Megson.
- Yossi Benayoun skoraði þrennu í leik liðanna fyrr á tímabilinu, sem endaði með 4-0 sigri Liverpool. Dirk Kuyt skoraði annað mark leiksins.
- Þeir kumpánar, Kuyt og Benayoun hafa skorað saman 15 mörk í deildinni á tímabilinu, Kuyt 9 mörk og Benayoun 6.
Spá Mark Lawrenson
Burnley v Liverpool
Eina leiðin til þess að Burnley nái góðum úrslitum í þessum leik er sú að þeir munu falla úr deildinni og pressan á þeim er engin.
En Liverpool, jafnvel án Fernando Torres, munu fá fullt af tækifærum á Turf Moor - og annað sem er mikilvægt, þá munu þeir fljúga heim frá Madrid eftir Evrópuleikinn í stað þess að eiga þreytandi ferð yfir land fyrir höndum.
Úrskurður: Burnley v Liverpool 1:2.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

