| Ólafur Haukur Tómasson

Kínverskir fjárfestar inni í myndinni?

Framtíð Rafael Benítez hefur verið mikið í sviðsljósinu á undanförnum mánuðum og virðast framtíðarplön hans breytast með hverjum deginum ef marka má allar þær fréttir sem birtast um það. Mikið er talað um að Juventus séu með hann á forgangslista sínum fyrir næstu leiktíð og vilji fá svar um það hvort hann vilji flytjast til Ítalíu en einnig er talað um að Real Madrid hafi áhuga á að fá hann í sínar raðir nái núverandi stjóri félagsins ekki titli í hús á leiktíðinni.

Benítez á eftir fjögur ár, af fimm ára samning sem hann skrifaði undir í fyrra sumar, og hefur hann sagst vilja vera út þann samning í þann minnsta við stjórnina hjá Liverpool en vegna slaks gengis liðsins á leiktíðinni þá vilja margir meina að Liverpool sé reiðubúið að láta hann fara eða hann muni koma til með að leita á önnur mið.

Umboðsmaður hans, Manuel Garcia Quillon, lét hafa eftir sér í dag að knattspyrnustjórinn hyggst virða samninginn sem hann gerði við Liverpool en gaf þó í skyn að fjárhagurinn gæti ráðið úrslitum í þeim efnum og einnig kom hann fram með þær fregnir að kínverskir fjárfestar hefðu áhuga á því að kaupa félagið - gegn því að Benítez yrði enn þá stjóri.

"Hugsun Benítez er að virða samninginn sem hann á við Liverpool til ársins 2014 en það er satt að félagið hefur orðið fyrir barðinu á sveiflum í fjármálunum.

Þeir [kínversu fjárfestarnir] gætu veitt framtíð félagsins mikinn innblástur og einnig framtíð Benítez. Kínverjarnir hafa áhuga og höfðu samband við Rafa og sögðu honum að þeirra skilyrði til að kaupa félagið er að hann verði áfram stjóri." sagði Quillon en þessar fréttir þykja nokkuð sláandi þar sem ekkert hafði áður heyrst af áhuga frá þessum dularfullu fjárfestum.

Quillon hafnaði einnig þeim sögusögnum að Real Madrid ætli sér Benítez í sumar: "Í augnablikinu hefur Madrid ekki gert neitt í því að ráða hann."

Benítez vill fá peninga til leikmannakaupa í sumar svo hann þurfi ekki að selja einhverja af lykilmönnum liðsins en hann sagðist þurfa hátt í 60 milljónir punda til að geta fjárfest í nægilega góðum leikmönnum til að koma liðinu aftur í titilbaráttuna. 

Einnig mætti greina frá því að Rafael Benítez svo gott sem staðfesti fyrstu kaup sumarsins þegar hann greindi frá því að kaupin á framherjanum Milan Jovanovic væru að klárast og sagði leikmaðurinn sjálfur að hann bíði aðeins eftir leikheimild áður en hann verði opinberlega verðandi leikmaður Liverpool. Hann kemur á frjálsri sölu frá belgíska liðinu Standard Liege og verður að öllum líkindum í sviðsljósinu með Serbum á Heimsmeistaramótinu í sumar.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan